|
![]() |
|
Fundur nr. 670 29. september 2002 Fyrsti fundur Lionsklúbbs Stykkishólms starfsárið 2002 – 2003 var haldinn 29. september í Prentsmiðju Stykkishólms. Þetta var fjáröflunar- og vinnufundur þar sem þrettán félagar mættu, klukkan tuttugu núll núll, með hamra, kúbein og önnur þau verkfæri sem til verks sem þessa dugir. Fyrir atorku og eljusemi hins bjarthærða formanns okkar áskotnaðist okkur þetta skemmtilega verkefni sem var að tæma prentsmiðjuna af tækjum, tólum, innréttingum og lausamunum og henda því flestu. Gunnlaugur náði sér þó þarna í sláturgarn, einar 18 rúllur sér til búdrýginda og höfðu félagar á orði að vambir fengi hann sennilega sendar frá steypustöðvarstjóranum á Selfossi. Aðrir félagar náðu svo sumir í sittlítið af hverju. Er líða tók á verkið fór ryk í kverkum og vökvatap af svita að segja til sín hjá sumum, en því sáu formaður okkar og Hjörtur við. Þar sýndi sig það sem svo oft hefur verið haldið fram að Helgfellingar hnýta ekki sína bagga sömu hnútum og við Hólmarar. Altjent var mikill munur á því sem borið var fram þó góður rómur væri gerður að hvorutveggja. Þessu verki lukum við á rétt rúmum fundartíma. Að loknu léttu spjalli þakkaði formaður mönnum mætinguna og sleit þessum óformlega fundi. Ritari:Páll Vignir
Fundur no. 671 haldinn í húsi klúbbsins fimmtudaginn 24. okt. kl. 20:30 Formaður setti fund og bauð velkomna félaga og Pétur Ágústsson, gest fundarins. Ritari kannaði mætingu, mættir voru 17 félagar og las síðan fundargerð síðasta fundar. Í upphafi fundar hafði formaður ætlað Eyberg að leysa verkefni sitt frá síðasta fundi er hann dró fána úr fánaborginni og átti að segja frá landinu sem fáninn tilheyrði. Það er skemmst frá því að segja að hann dró líttþektan fána úr borginni, og tvær vikurnar sennilega ekki dugað til verksins, hann var allavega fjarverandi. Formaður afhenti Þorsteini Jónasyni formanni verkefna og fjáröflunarnefndar erindisbréf þar sem verkefni nefndarinnar, sem eru ærin, voru skilgreind og lagt var að Þorsteini að virkja alla félaga sína í nefndinni með sér. Þá var komið að formanni skemmtinefndar að taka við sínu erindisbréfi, þeirra verkefni eru ólík en ekki síður krefjandi. Kaffið var í boði Gunnlaugs og Magnúsar A, verkefni sem þeir leystu með miklum sóma. Að loknu kaffinu afhenti formaður fyrsta flokk fundinn. Óskar kynnti gest fundarins, Pétur Ágústsson. Pétur byrjaði erindi sitt á því að kynna fyrirtækið Sæferðir. Kom meðal annars fram í máli hans að hjá fyrirtækinu væru um 25 ársstörf, 45 á sumrin og 17 á veturna. Áætluð velta mun vera um 220 m.kr og farþegafjöldi ca. 51,000. Þannig væri ferjan Baldur með ca. 34.000 farþega, Suðureyjaferðir með um 10.000, vor- og veisluferðir með um 3.000 og hvalaskoðun ca. 4000 farþega. Að lokinni þessari kynningu á fyrirtækinu sneri hann máli sínu að ferjusiglingum yfir Breiðafjörð og ræddi þær nokkuð ítarlega allt frá því að byggður yrði heilsársvergur vestur eða keypt yrði annað skip og til gamans sýndi hann okkur myndir af skipi sem væri falt. Að loknu erindi hans spunnust nokkrar umræður meðal annars hvort hvalveiðar og hvalskoðun gætu farið saman, taldi hann svo vera enda vanur hvalfangari af Hval 9. Formaður þakkaði Pétri fyrir erindið og gaf gjaldkera færi á að minna félaga á félasgjöldin. Siðameistari leitaði að merkjalausum félaga til að sekta og var sektin fólgin í því að sjá um uppvaskið fyrir hann, voru félagar á því að með þessu framferði sínu væri hann kominn á grátt svæði. Formaður þakkaði 1. flokki fyrir fundinn las siðareglu og sleit fundi Ritari: Páll Vignir
Fundur no. 672 haldinn í húsi klúbbsins fimmtudaginn 14. nóv kl 20:30 Formaður setti fund og bauð félaga, og þó sérstaklega Sigurð Pál, velkomna. Ritari kannaði mætingu - mættir voru 20 félagar - og las síðan fundargerð síðasta fundar. Í upphafi fundar gerði formaður grein fyrir óupplýstu sakamáli er snart klúbbinn, en við urðum fyrir því í kringum hálfrar aldar afmæli formannsins að brotist var inn í húsnæði klúbbsins og þaðan stolið ljóninu og okkar digra kaffisjóði. Þá var komið að Eyberg að segja frá hvaða landi fáninn tilheyrði sem hann hafði dregið úr fánaborginni. Landið var Lichtenstein og gerði hann landinu allgóð skil. Þegar Eyberg hafði lokið sinni tölu um Lichtenstein valdi formaður nafn Gunnlaugs Árnasonar nánast alveg blindandi úr starfsskránni til að draga næsta fána. Gjaldkeri og ritari kvöddu sér hljóðs og afhentu formanni afmælisgjöf frá klúbbnum í tilefnis fimmtugs afmæli hans. Kaffið var í boði Guðmundar Kristins. Að loknu kaffinu afhenti formaður 2. flokki fundinn. Þorbergur kynnti gest þeirra sem var Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri í Grundarfjarðarbæ. Rakti hún sögu nágranna okkar í stuttu máli og fór svo yfir helstu verkefni og framkvæmdir sem þeir hafa staðið í og væru frammundan. Því næst rakti hún helstu samstarfverkefni Snæfellinga og að framsögu hennar lokinni spunnust þó nokkrar umræður. Þorbergur þakkaði Björgu fyrir erindið og leysti hana út með gjöf sem var penni merktur körfuknattleiksdeild Snæfells. Siðameistari sektaði Sigurð Ágústsson sem á að koma með stutta sögu úr vegagerðinni og Gunnar Svanlaugsson sem á að mæta með gítar á næsta fund. Formaður þakkaði 2. flokki fyrir fundinn las siðareglu og sleit fundi. Ritari Páll Vignir
Fundur no. 673 haldinn í Ráðhúsi bæjarins fimmtudaginn 28. nóv. kl 20:30 Fundurinn var óhefðbundinn þar sem félagar hlýddu á Bæring Jónsson
kynna deiliskipulag gamla miðbæjarins og hafnarsvæðisins. Fundur no. 674 haldinn á Narfeyrastofu fimmtudaginn 12 desember kl. 20:30 Formaður setti fund og bauð velkomna félaga og gesti sem voru nokkrir. Ritari kannaði mætingu og las síðan fundargerð síðasta fundar. Fundurinn hófst á því að borin var fram súpa og með henni brauð. Þá var komið að inntöku nýs félaga, Lárusar Franz Hallfreðssonar. Meðmælandi var Hallfreður. Gunnlaugur, formaður félaganefndar, ásamt formanni kynntu sögu og markmið Lionsklúbba og lásu úr siðareglum. Síðan var nýr félagi boðinn velkominn til starfa og að hætti okkar Lionsmanna var húsmóðirinni í Ögri sendur blómvöndur að þessu tilefni. Þá ætlaði formaður Gunnlaugi að segja frá því landi sem fáninn tilheyrði sem hann dró á síðasta fundi. Landið var Máritíanía, land sem hafði fengið sjálfstæði frá Frökkum 28. nóv. 1960. Hafði hann með orðið sér út um gríðarstór kort til að sýna stærð og lögun landsins en þótt öll helst kennileiti væru til staðar og kortið stórt fannst landi hvergi enda kortið frá upphafsárum síðust aldar og ekki farið að huga að stofnun Máritínu en þessu var þó kippt í liðinn. Því næst sagði Gunnlaugur okkur stutta ferðasögu. Hann hafði ætlað að bjóða Sigrúnu í það sem átti að vera stutt gönguferð í og við Bjarnarhafnarfjall en atorkan og kappið svo mikið að hann varð að stela fjárbíl í Bjarnarhöfn til þess að koma sér og henni til byggða aftur. Þorsteinn, formaður verkefna- og fjáröflunarnefndar fór yfir það sem var framundan hjá jólasveinunum: Þorlásmessa og jólaball Ritari sýndi félögunum nýtt ljón sem var ætlað að koma í stað þess gamla sem við töpuðum þegar brotist var inn hjá okkur. Því næst dró Óskar nýjan fána úr fánaborginni. Formaður las siðareglu og sleit formlegum fundi og bað skemmtinefnd að taka við, byrjað var á því að syngja nokkur jólalög til upphitunar fyrir jólasveinanna, því næst var farið í spila bingo og var það spilað frameftir kvöldi og öl kneifað með. Ritari Páll Vignir
Fundur no. 675 haldinn að Skildi föstudaginn 10 jan. Kl: 21:00 Þetta var sameiginlegt skemmtikvöld með Hörpunum Farið var með rútu frá Lionshúsinu kl. 20:45 og haldið að Skildi þar sem var etið, sungið, spjallað og drukkið fram eftir kvöldi. Formenn beggja klúbba héldu stutta tölu og buðu fólk velkomið. Því næst voru sungin nokkur lög við undirleik Gunnars og Hrafnkels en á meðan báru Hörpurnar inn veitingar sem þær höfðu séð um að útbúa fyrir mannskapinn. Þá gekk fólk að snæðingi og fljótlega hófust skemmtiatriðin. Því er skemmst frá að segja að siðameistarinn fór á kostum sem dómari í spurningakeppni milli klúbbanna, en hann hafði fengið að láni nokkur gleraugu sem hann virtist sjá misvel með, allavega náði hann að hagræða hlutum þannig að karlaklúbburinn vann með nokkrum yfirburðum. Að spurningakeppninni lokinni var haldið pakkauppboð sem gekk mjög vel, aðallega þó eftir að Hjörtur opnaði reikning hjá formanni og sankaði eftir það að sér hinum margvíslegustu munum. Rúmlega 12 var svo sungið fyrir Hallfreð sem varð 65 ára eftir miðnætti þessa dags og honum færður blómvöndur frá lionsfélögunum. Um klukkan eitt hélt svo rútan heim í Hólm með sæla og glaða félagsmenn, maka þeirra og gesti. Ritari, Páll Vignir
Fundur no. 676 haldinn í húsi klúbbsins fimmtudaginn 23. jan kl. 20:30 Formaður setti fund og bauð félaga og gesti, þá Svanlaug og Bjarna Lárussyni, velkomna. Ritari kannaði mætingu, mættir voru 20 félagar. Las síðan fundargerð síðasta fundar Í upphafi fór formaður verkefnanefndar yfir jólavertíðina, þ.e.a.s. Þorláksmessu og jólaböll að Skildi og í félagsheimilinu en eftirtekjan var fremur rýr miðað við efni og gæði þeirra jólasveina sem mættu ásamt aðstoaðrmönnum eða um sextán þúsund krónur á hvorn klúbb. Einnig ræddi hann þrif á skeggjum sem ekki þótti vanþörf á. Gunnlaugur Árnason, formaður félaganefndar, bar upp tvo nýja félaga: Þórð Magnússon og Jón Helga Jónsson og voru þeir samþykktir með lófaklappi. Formaður sagði stuttlega frá ferð sinni og ritara til Ólafsvíkur þar sem Lionsklúbbur Ólafsvíkur hélt glæsilega upp á þrjátíu ára afmæli sitt. Þá var komið að Óskari að kynna okkur hið stríðshrjáða land Búrma. Þetta var Indversk nýlenda til 1938 en þá hernámu Japanar það, en er því stjórnað af herforingjastjórn í dag. Eftir ýtarlega kynningu á landinu var komið að Dóa að draga næsta fána úr borginni. Þá var komið að kaffihléi. Eftir kaffið tók 3. flokkur við fundinum. Magnús F. Jónsson kynnti efni flokksins sem hófst á því að Óli Jón Gunnarsson, bæjarstjóri fór yfir helstu málefni bæjarins og var með töflu sem sýndi heildaryfirlit tekna og gjalda á íbúa í byggðarlögunum á Vesturlandi. Eftir erindið spunnust þó nokkrar umræður. Í lok fundarins sýndi Magnús okkur magnaðar 25 ára gamlar video myndir frá síðustu dögum Sigurðarbúðar í gamla húsnæði sínu og flutning í nýtt og glæsilegt húsnæði að Borgarbraut. Að mynd lokinni las formaður siðareglu og sleit fundi. Fundur no. 677 haldinn í húsi klúbbsins fimmtudaginn 13 feb. 2003 kl.20:30 Varaformaður setti fundinn í fjarveru formanns og bar félögum kveðju frá formanni. Ritari kannaði mætingu og las fundargerð síðasta fundar. Varaformaður áréttaði við formenn flokkanna að hringja tímalega og samviskulega út fundarboð. Formaður verkefnanefndar skýrði frá því að ákveðið hafi verið í samráði við kvenfélagið Hringinn og Hörpurnar að nota hluta af þeim peningum sem fengust fyrir unglingalandsmótið til kaupa á hjartatæki fyrir sjúkrahúsið, einnig minnti hann félaga á að mæta vel í blómasölu fyrir konudaginn. Þá var komið að inntöku nýrra félaga sem formaður félaganefndar sá um með aðstoð ritara og gjaldkera, það voru þeir Jón Helgi Jónsson, meðmælandi Hallfreður, og Þórður Magnússon og hans meðmælandi Þröstur litli bróðir. Jón Helgi var settur í 4. flokk og Þórður í þann sjötta. Hallfreður fór í pontu og sagði frá heimsókn sinni til Þorgríms sem á sem stendur við veikindi að stríða og minnti á að á stundum sem þessum ættum við að láta félagana finna hvers virði þeir væru okkur og klúbburinn þeim. Kaffið var í boði Brynjars og Þorsteins. Eftir kaffið tók 4. flokkur við fundinum. Þeir voru svo heppnir að einn úr flokknum hann Dói hafði dregið fána á síðasta fundi sem var fáni Suður-Kóreu. Frá 1669 var Kóreuskaginn eitt ríki og þó Dói væri ekki gamall maður hafði hann fylgst vel með Kóreustríðinu sem stóð frá 1950 til 1953 en fréttir frá því voru nær daglegar í útvarpinu þá. Stríðið endaði með því að skaganum var skipt eftir 38. breiddargráðu í Norður- og Suður-Kóreu. Seul er höfuðborg Suður-Kóreu. Þegar Þórður hafði farið ýtarlega yfir Suður-Kóreu dró Hjörtur næsta fána. Í lok fundar las Keli upp úr minningabrotum sínum sem hann hefur verið að taka saman, byrjaði á að rifja upp fyrstu ár ævi sinnar á Hjarðarfelli svo þegar hann bjó og vann sem smiður út á Hellisandi og ekki síst eftir að hann flutti hingað inneftir og fór að keyra flutningabíl fyrir Kaupfélgið og svo leigubíl. Það sem stóð eftir hjá mér sem ekki var fæddur á þessum tíma var spurningin um það í hvaða rúm á Gríshóli hann hefði verið lagður í þau ófáu skipti sem hann þurfti að labba þangað heim eftir hafa lent í einhverskonar óhappi á fjallinu. Eftir lesturinn rifjuðust upp nokkrar góðar sögur hjá félögunum frá leigubílaakstrinum. Að þessu loknu las varaformaður siðareglu og sleit fundi. Ritari Páll Vignir.
Fundur no. 678 haldinn í húsi klúbbsins fimmtudaginn 27 feb. 2003 kl. 20:30 Formaður setti fundinn og bauð félaga velkomna. Ritari kannaði mætingu og las fundargerð síðasta fundar Formaður fékk Hallfreð í fjarveru formanns verkefnanefndar til að fara yfir blómasölu sem var á laugardegi fyrir konudaginn 23. síðastliðinn. Formaður fór stuttlega yfir stjórnarkjör sem framundan væri og þyrfti helst að ganga frá á öðrum hvorum fundinum í mars. Hjörtur dró fána síðasta fundar og fór hann alveg nýjar leiðir við kynningu á landinu. Hann fékk Þórð Magnússon, Brynjar og Magnús F. til að taka þátt í spurningaleik að hætti Gettu betu., Svo var farið í vísbendingaspurningar, hann byrjaði á að gefa upp lengd og breidd landsins en þar sem það kveikti ekki á neinum perum var farið í myndavísbendingar. Þegar hér var komið var orðið mikið skvaldur og köll félaga fram úr sal og töldu margir sig þekkja landið, þó sérstaklega af fossi einum er var á þriðju mynd en það reyndist ekki rétt, það fór þó svo að lokum að svarið kom fram úr sal. Landið Chile þar sem búa um 13 miljónir manna, höfuðborgin er Santiago og stjórnarfar er lýðveldi. Þá var komið að Þresti að draga næsta fána. Kaffið var í boði Ísleifs og Magnúsar F. Eftir kaffið var skemmtinefnd afhendur fundurinn. Gunnar Svanlaugs kynnti okkur gest fundarins sem vörpulegur miðaldra hvitur karlmaður ekki hár né herðabreiður heldur lágur til hnésins og fremur rýr en þrátt fyrir það er hann Gunnar Gunnarsson formaður hörkutólafélags Stykkishólms. Félagsskapar sem stendur vörð um stöðu miðaldra karlmanna í samfélaginu og vill halda í gömul gildi þar sem karlmaðurinn var ótvíræður leiðtogi innan veggja heimilisins og í samfélaginu almennt. Eftir kynningu Gunnars á félagskapnum voru spiluð nokkur lög af nýútkomnum diski þeirra sem hefur fengið gríðargóðar viðtökur hérlendis og ekki síður erlendis. Fóru lögin almennt vel í menn, þó fór eitt lagið fyrir brjóstið á sumum, óttaðist Sigurður Ágústsson til að mynda barsmíðar út á Nesi færi hann að syngja það þar. Ég segi nú bara það, að ætla berja mann sem er á þriðja metra ber ekki vott um mikið hyggjuvit. Að lokinni kynningu Gunnars á Hörutólunum þakkaði formaður honum fyrir og afhenti honum fána klúbbsins. Siðameistari sektaði Hjört, hann á að veiða fisk herða hann og koma með hann tilbúinn á síðasta fundinn á starfsárinu, ennfremur minnti hann Sigurð á sína sekt sem var saga úr vegagerðinni. Formaður las siðareglu og sleit fundi Ritari Páll Vignir.
Fundur no. 681 haldinn í húsi klúbbsins fimmtudaginn 10. apríl 2003 kl. 20:30 Formaður setti fundinn og bauð félaga og gest fundarins, Einar K. Guðfinnsson alþingismann velkomna. Ritari kannaði mætingu og las fundargerð síðasta fundar. Þröstur fór, í fjarveru formanns verkefnanefndar, yfir það sem var framundan um páskana, þ.e.a.s. blómasala á miðvikudegi fyrir skírdag og að pöntuð hefðu verið blóm og nellikur fyrir fermingarbörn. Þá var komið að formanni að stjórna stjórnarkjöri fyrir næsta starfsár, bar hann upp tillögu stjórnar sem er Formaður: Gunnar Svanlaugsson Það er skemmst frá því að segja að ekki komu fram nein mótmæli við þessari tillögu og hún samþykkt með lófaklappi. Einnig var gerð tillaga að varastjórn sem er Formaður: Ísleifur Jónsson Að lokum ber þess að geta að Gunnlaugur hafði samþykkt að taka að sér að gegna embætti svæðisstjóra næsta starfsár og var þetta hvorttveggja samþykkt með lófaklappi. Þá var komið að kaffi sem var í boði Þrastar og Óskars. Eftir kaffið ræddi formaðurinn um starf klúbbsins á liðnu starfsári þó sérstaklega innra starf og það hvers við félagarnir væntum af klúbbstarfinu og hvað við gætum gert betur. Að því loknu dreifði hann miðum sem við áttum að skrifa á það helsta sem við töldum að við mættum betur gera annars vegar og svo það sem væri vel gert. Síðan var unnið stuttlega með þessa miða og helstu niðurstöður greindar. Þorbergur ræddi stuttlega starf klúbbsins í kringum Danska daga og sagði okkur svo frá gríðarlegri uppbygginu á háskólasvæðunum, bæði á Hvanneyri og á Bifröst. Gunnar þakkaði klúbbnum kostun forvarnaverkefnis Stoppleikhópsins sem var leiksýning ætluð elstu bekkjum grunnskólans. Að því loknu fræddi Einar K. Guðfinsson, gestur fundarins, okkur um starf Lionsklúbbs Bolungarvíkur. Formaður las siðareglu og sleit fundi. Ritari: Páll Vignir
|
![]() |