Fundir 2003-2004   
 

Forsíða Til baka

 
   

Fundur nr. 683 var Samfundur og var haldinn í Lionshúsinu 11. október 2003

Smelltu hér til þess að lesa fundargerðina.
 


Fundur nr. 684 haldinn í Lionshúsinu 23. október 2003

Formaður setti fundinn og bauð félaga velkomna. Ritari kannaði mætingu, það vakti bæði athygli og aðdáun undirritaðs að Björgvin Þorvarðar gat gert grein fyrir fjarvistum allra þeirra sem ekki voru mættir nema þá kannski Kela og Árna.

Formaður dreifði nýrri félagaskrá fyrir starfsárið og gerði mikið með eigin hæfileika í sambandi við uppsetningu og ljósritun hennar, jafnframt gerði hann grein fyrir breyttum fundartíma. Lalli Frans og Eyþór sáu um kaffið og báru með því þrjár tegundir af dönsku bakkelsi.

Eyþór fór yfir starf síðasta árs og sagði stuttlega frá heimasíðu klúbbsins sem hefur verið mikið endurbætt og uppfærð. Magnús fór yfir reikninga síðasta starfsárs, eftir umræður um þá voru þeir samþykktir samhljóða.

Gunnlaugur vígði Þorstein Jónasson sem nýjan siðameistara, Gunnlaugur taldi sig ekki hafa verið nógu duglegan í sínu starfi, atltjent komst Hallfreður létt frá síðasta starfsári hvað sektir varðar.

Gjaldkeri gerði grein fyrir árgjaldi sem skyldi verða óbreytt frá síðasta ári, einnig ræddi gjaldkeri það gjald sem við tökum fyrir leigu á húsnæðinu og hvort þyrfti að endurskoða það.

Páll Hjaltalín fór yfir það sem framundan væri hjá húsnefnd m.a. kaup á nýju eldhúsi, einnig fór hann yfir þær framkvæmdir sem sem við höfum staðið í við húsið í haust.

Formaður þakkaði húsnefnd vel unnin störf og afhenti 1. flokk fundinn. Björgvin Þ. byrjaði á að rekja raunir sínar gagnvart félögum sínum í 1. flokki en hann var einn mættur af þeim, að því loknu fór hann með erindi sem Óli Jón hafði flutt á samfundi með umdæmisstjóra “ Hvað gerir Lions fyrir bæinn okkar”

Gunnlaugur fór stuttlega yfir starfssvið svæðisstjóra en því mikilvæga embætti gegnir hann þetta starfsárið, einnig ræddi hann innra starf klúbbsins og kom með hugmynd að lokafundi.

Formaður þakkaði félögum mætinguna las siðareglu og sleit fundi.

Ritari: Páll Vignir


Forsíða Til baka

Fundur nr. 685 haldinn í húsi klúbbsins fimmtudaginn 13. nóv. 2003 kl. 21.00

Formaður setti fund og bauð félaga og gesti velkomna. Gestir fundarins voru: Kjartan Páll Einarsson, Sveinn Björsson, Ólafur Guðmundsson og Ægir Ólafsson. Ritari kannaði mætingu og las fundargerð síðasta fundar.

Fundur hófst á því að formaður afhenti Ísleifi, formanni Verkefna- og fjáröflunarnefndar, erindisbréf en í því voru tilgreind þau miklu ábyrgðarstörf sem nefndinni er ætlað að inna af hendi. Þá var komið að Þórði Magnússyni að taka við sínu erindisbréfi sem formanni Skemmtinefndar, ekki síður ábyrgðarfullt starf.

Páll Hjaltalín fyrir hönd húsnefndar gerði grein fyrir tilboði sem klúbburinn hafði fengið í nýja eldhúsinnréttingu frá IKEA og var almennt gerður góður rómur af því.

Þegar hér var komið kynnti formaður gestum okkar stuttlega klúbbinn, það starf og þau verkefni sem við sinnum yfir starfsárið. Ísleifur ræddi stuttlega þau verkefni sem framundan væru t.d. dagatalið sem við höfum gefið út undanfarin ár Hallfreður minnti okkur á að tveir félagar ætluðu að vera í fríi þetta starfsárið og hvatti okkur til að hafa allar klær úti til að afla nýrra félaga. Að þessu loknu afhenti formaður 2. flokki fundinn.

Gunnlaugur tók við fundinum. Hann byrjaði á að tala um hversu stoltur hann væri yfir því að hafa náð 100% mætingu sinna manna og víst er að það lætur nærri að vera 75% betri mæting en var hjá 1. flokki á síðasta fundi. Því næst las hann nokkrar örsögur frá félögum sínum. Þá var komið að hápunkti kvöldsins er Gunnlaugur bað okkur félagana að ganga með sér upp í Hljómskála þar sem leikfélagið er að æfa söngleikinn Lukkuriddarinn.

Þegar í Hljómskálann var komið tók Halldóra formaður félagsins á móti okkur og sagði stuttlega frá starfi leikfélagsins og því stykki sem væri verið að æfa. Þetta er einmitt sama stykki og var sett upp á fyrsta starfsári félagsins og þá var það hann Keli okkar sem fór með aðalhlutverkið og sagði hann okkur frá því auk þess sem hann söng titillagið úr stykkinu. Því næst sungu Siggi Palli, Alli og Margrét lag úr verkinu.

Þá þakkaði Gunnar leikfélögum fyrir skemmtilegar móttökur, las siðareglu og sleit fundi.

Ritari Páll Vignir
 


Forsíða Til baka

 

Fundur nr. 686 haldinn í húsi klúbbsins fimmtudaginn 27. nóv 2003 kl. 21.00

Formaður bauð félaga og gesti velkomna. Gestir fundarins voru Jón Arilíus, Valdimar Kúld, Baldur Gíslasson og Einar Strand. Ritari las fundargerð síðasta fundar.

Fundur hófst á því að gjaldkera var afhent gjöf frá klúbbnum í tilefni af sextugsafmæli sínu daginn áður og voru mömmu líka send blóm frá klúbbnum af þessu tilefni. Að því loknu var sungið fyrir hann og að vanda réð Þórður tóntegundinni. Gjaldkeri þakkaði fyrir sig, sönginn og mömmu.

Formaður fór stuttlega yfir markmið Lionsklúbbsins fyrir gesti okkar. Hallfreður bar upp fjóra nýja félaga þá Svein Björnsson, Ólaf Guðmundsson, Ægi Ólafsson og Valdimar Kúld.

Ísleifur minnti á að nú færi í hönd jólasveinavertíð ásamt öðrum þeim verkefnum sem klúbburinn sinnir fyrir hátíðarnar og bað félaga að taka því vel þegar í þá væri hóað.

Siðameistari lofaði frekari beitingu sektarákvæða eftir áramót.

3. flokki var þá afhentur fundurinn. Eyþór var einn mættur úr flokknum, ákvað hann því að sleppa öllum upplestri úr jólabókum en fékk í stað þess þá Einar Þór Strand og Baldur Gíslason til að kynna hugmyndir þeirra um virkjun sjávarfalla og strauma í Breiðarfirði. Fóru þeir stuttlega yfir þá virkjunarmöguleika og sýndu okkur myndir af túrbínum og öðru slíku sem til þeirra hluta eru ætlaðir. Meðan á erindinu stóð var borið fram kaffi og kökur af starfsfólki Narfeyrarstofu. Um þetta spunnust töluverðar umræður og vangaveltur. Eyþór þakkaði gestum sínum fyrir fróðlegt og gott erindi.

Formaður þakkaði 3. flokki fundinn og minnti á að næsti fundur yrði 11. desember og um hann sæi skemmtinefnd. Formaður las siðareglu og sleit fundi.

Ritari Páll Vignir
 

Forsíða Til baka

 

Fundur nr. 687 haldinn á Fimm fiskum fimmtudaginn 11. des. kl. 21.00 2003

Fundurinn hófst á að formaður bauð félaga og gesti velkomna. Gestir fundarins voru þeir höfðingjar Bjarni og Svanlaugur Lár “frændi” þeirra Beibe eða öllu heldur Bjarni Lárentínusson, Benedikt Lárusson og Bergþór sonur Óla Jóns. Ritari kannaði mætingu og las fundargerð síðasta fundar.

Formaður sagði frá ferð sinni og nokkurra félaga til Búðardals en þar héldu frændur okkar upp á 40 ára afmæli Lionsklúbbs Búðardals sem jafnframt er móðurklúbbur Lionsklúbbs Stykkishólms. Gunnlaugur gerði enn og betri grein fyrir ferðinni og kom meðal annars fram í máli hans að fordrykkir og ræðuhöld þar sem Dalamenn voru mærðir mjög hafi staðið til að ganga 3 að morgni og þá hafi átt að fara dansa.

Dói fór í forföllum Ísleifs yfir það sem lá fyrir hjá Verkefnanefnd fyrir jólin.

Þá var komið að inntöku nýrra félaga, þeirra Valdimars Kúlds og Sveins Björnssonar og sá Hallfreður um þá athöfn með aðstoð Eyþórs og Gunnlaugs. Að lokinni inntöku voru þeim Valda og Sveini afhent blóm sem þeir skyldu færa eiginkonu, móður eða foráðamanni eftir atvikum með kveðju frá klúbbnum. Valdi var settur í 6. flokk og Sveini komið í þann 3. Þá voru vertinum á Fimm fiskum einnig afhent blóm og hamingjuóskir með stofnun nýs fyrirtækis sem hann og félagi okkar Þorgrímur voru að fara á stað með.

Skemmtinefnd var afhentur fundurinn. Gunnlaugur ræddi áfram tillögu að lokafundi, að hann yrði haldinn þann 6. maí á Sauðárkróki. Á meðan Gunnlaugur gerði bingóið klárt var söngheftum dreift og jólasveinasöngvarnir æfðir. Þá var barinn opnaður og Baldur og Gunnlaugur stjórnuðu bingói við mikinn fögnuð viðstaddra.

Formaður þakkaði skemmtinefnd fundinn, las siðareglu og sleit fundi.

Ritari Páll Vignir

Fundur nr. 688 haldinn þriðjudaginn 23. des

Vinnufundur þar sem jólasveinar með aðstoð lionsfélaga heimsóttu m.a. dvalarheimilið og sjúkrahúsið og færði vistmönnum og þeim sem ekki áttu heimagengt um jólin gjafir og sungu fyrir þau jólalög ásamt því að gera sjálum sér glaðan dag.

Ritari Páll Vignir

Forsíða Til baka

 

Fundur no. 689 haldinn í Lionshúsinu kl. 21:00 fimmtudaginn 8. jan. 2004

Formaður setti fund, bauð félaga velkomna og óskaði öllum gleðilegs árs. Ritari kannaði mætingu og las fundargerð síðustu tveggja funda. Fundur hófst á að formaður bar klúbbnum kveðju frá Unni og Vilberg Guðjónssyni en þau vildu fyrir hönd dóttur sinnar Elísu þakka innilega fyrir þann styrk sem henni var veittur í sínu söngnámi.

Formaður þakkaði Verkefnaefnd og þá sérstaklega Ísleifi fyrir störf nefndarinnar í öllum þeim verkefnum sem klúbburinn sinnti í kringum jólin. Ísleifur var því miður með slæmsku í fæti og átti því ekki heimangengt á fundinn, en fóturinn var í lagi um jólin. Í framhaldi af þessu spannst töluverð umræða um jólaballið, þótt framkvæmd þess hafi tekist með miklum ágætum var mæting gesta kanski ekki með sama móti og veltu félagar fyrir sér hvort eitthvað hefði betur mátt fara t.d. í kynningu á því.

Páll Hjaltalín, fyrir hönd húsnefndar, fór yfir það hvernig vinnu við nýja innréttingu miðaði, hann sýndi m.a. myndir af innréttingunni, sagði að von væri á henni um mánaðamótin janúar / febrúar. Dói hvatti félaga til að taka frá tíma þegar innréttingin kæmi því margar hendur vinna létt verk.

Kaffi sáu Hallfreður og Baldur um og var það einkar vel útlátið

Eftir kaffið talaði Gunnlaugur um starf svæðisstjóra og sagði frá svæðisfundi sem hann yrði með í Grundarfirði þann 10. janúar og hvatti hann þá félaga sem möguleika ættu á að mæta að gera það. Einnig talaði hann um Rauðufjaðrar verkefni sem Lionshreyfingin væri að fara á stað með, hugmyndin er að þeir peningar sem myndu safnast færu í verkefni sem kallast “börn í vanda”. Þá sagði hann frá því að klúbburinn ætti nú kost á því að senda einn ungling í unglingaskipti á vegum hreyfingarinnar. Í framhaldi af þessu sagði Páll Hjaltalín okkur frá því að sonur hans Egill hefði farið í slík unglingaskipti fyrir nokkrum árum.

Gjaldkeri sagði örfá orð um jólaballið, kostnað og fleira, síðan minnti hann félaga á félagsgjöldin.

Formaður las siðareglu og sleit fundi.

Ritari Páll Vignir