Grænfánastarf í yngri deildum

Yngri deildir Grunnskólans í Stykkishólmi (1. – 4. bekkur) eru staðsettar við Skólastíg og eru í eldra húsnæði grunnskólans. Þessar deildir fengu grænfánann afhentan í maí 2007 eftir að hafa flokkað og minnkað rusl verulega í einn vetur.

Það gengur mjög vel og nú hefur Stykkishólmsbær tekið upp flokkun sorps hjá öllum bæjarbúum. Hvert heimili hefur fengið þrjár tunnur. Allt lífrænt sorp verður að mold á gámastöðinni Snoppu utan við bæinn, til notkunar fyrir bæjarbúa.

Nú í vetur eru yngri deildirnar að spara orku til að halda fánanum áfram hjá sér.

Eldri deildir skólans eru að byrja vinnu til geta sótt um grænfánann.

Hér að neðan er mynd af fundi í umhverfishóp yngri deildanna haustið 2007. Aðalmál á dagskrá var: Hvernig spörum við orku ?