|
Það var í
byrjun 4. áratugarins að leitað var til reglu St.Franciskussystra og þær
beðnar um að taka að sér að reisa og reka sjúkrahús í Stykkishólmi.
Þeirri málaleitan var vel tekið og þann 22. júní
1935 komu fyrstu St.Franciskussysturnar til Stykkishólms. Þá höfðu
nokkur önnur sveitarfélög reynt að fá þær til sín, en án árangurs.
Systrunum var vel tekið, þó heimamenn sem fæstir höfðu séð
klausturfólk áður, væru nokkuð óvissir um það hvernig bæri að umgangast
slíkt fólk. Börnin voru þó fljót að taka við sér og fóru brátt að venja
komur sínar í klaustrið, þar sem vel var tekið á móti þeim. Segja má
að allir hafi notið góðs af þeim heimsóknum. Systurnar kenndu ungu
stúlkunum að sauma og lærðu tungumálið af börnunum í leiðinni. Síðan
varð það fastur liður hjá börnunum í Hólminum að fara til systranna á
sunnudögum, stelpurnar í saumatíma en strákarnir unnu við smíðar og
föndur. Þetta fyrirkomulag hélst alveg til ársins 1970, enda börnum þá
farið að bjóðast meira til afþreyingar svo sem sjónvarpið.
Aðalvinna systranna var þó samt sem áður í tengslum við
spítalann. Hólmarar höfðu byggt stórt svo þó nokkuð af húsnæðinu var
ónýtt og reksturinn því dýr. Það varð því úr árið 1940 að systurnar
tóku til sín í sumarvistun börn úr Reykjavík, að beiðni Rauðakross
Íslands. Það samstarf hélst allt til loka síðari heimsstyrjaldar.
Sumardvalarvistunin var síðan tekin upp að nýju árið 1957 og
enn voru það börn af Reykjavíkursvæðinu sem nutu góðs af sveitasælunni.
Hér undu þau sér vel í snertingu við náttúruna fjarri skarkala
borgarinnar. Það voru aðallega ungar stúlkur úr Hólminum sem störfuðu
með systrunum við þessa vistun. Oft komu sömu börnin sumar eftir
sumar. Þess eru meira að segja dæmi að dvalarbörn gerðust síðar
starfsmenn systranna, bæði við sumardvalarheimilið og spítalann og
jafnvel ílengdust hér. Þessi starfsemi var með hléum til ársins 1980 er
hún lagðist endanlega niður.
En
systurnar létu sér ekki nægja að reka sumardvalarheimilið. Því þann
7.október 1957 var Leikskóli St.Franciskussystra stofnaður. Hann
starfaði á veturnar og var ætlaður börnum undir skólaskyldualdri. Jókst
þessi starfsemi ört, frá því að vera 12 börn 1957 til þess að vera
orðin 60 að tölu árið 1963. Þrengslin voru því orðin mikil og því var
ráðist í það 1967 að byggja sérstakt hús samtengt spítalanum til að hýsa
leikskólann. Í þeirri byggingu var leikskólinn þar til í janúar
2007.
Til að byrja með voru aðallega tvær systur sem sáu um
leikskólann, Systir Harríet og Systir María Elísabet. En eftir að nýja
byggingin var tekin í gagnið kom til landsins frá Belgíu uppeldismenntuð
nunna, Systir Lovísa, og tók við rekstrinum. Almennum starfsmönnum
fjölgaði einnig ört.
Um leið og sumardvalarheimilið var lagt niður 1980, var leikskólinn
gerður að heilsársskóla. Hann var áfram rekinn af St.Franciskusreglunni
en nú með fjárframlagi frá Stykkishólmsbæ. Það fyrirkomulag hélst allt
til 1. ágúst 1997 er bærinn tók alfarið við rekstri leikskólans.
Segja má að miklar breytingar hafi orðið frá
fyrstu árum barnaheimilis hvað varðar hugmyndafræði. Það virðist sem
systurnar hafi verið í kennarahlutverkinu og að ströngum aga hafi verið
haldið í heiðri svo og kynjaskiptingu. Á myndum og frásögnum fólks frá
þessum árum má glöggt greina áhrif menningarmiðlunarstefnunnar í starfi
þeirra. Börnin voru í stórum hópum og sátu við sín borð, rétt eins og
tíðkast hefur í eldri deildum til þessa. Mikið var lagt upp úr beinni
kennslu og jafnvel reynt að kenna börnunum stærðfræði. Það var mikið
föndrað, en flest af því ef ekki allt var eftir uppskriftum, minna
lagt upp úr skapandi starfi barnanna og hugmyndaauðgi þeirra. Einnig
virðist sem systurnar hafi notað refsingar sem í dag myndu ekki líðast.
Hvort sem það var tíðarandanum þá um að kenna eða uppeldishugmyndum frá
þeirra heimalandi skal ósagt látið. Þá sköpuðust oft heitar umræður í
bænum um réttmæti þess að börnin væru í gæslu hjá systrunum, sem höfðu
misgóð og jafnvel miður góð tök á íslenskunni. Þeir voru þó í
meirihluta sem voru veru systranna hér og starfi þeirra hliðhollir.
Nafnið ,, Spító “ festist fljótlega við barnaheimilið og mun
það vera stytting á Spítalaskóli. Eftirminnilegasta minning flestra
þeirra barna sem voru á Spító á þessum árum er um Malú. Malú var
teiknimyndahetja sem var í miklu uppáhaldi hjá heilli kynslóð. Þegar
sýningum lauk, var alltaf hrópað ,, meira Malú, meira Malú………”, hvort
sem látið var undan þeim kröfum eður
ei.
Fram til 1997 voru starfsmenn
leikskólans
að
mestu leiti ófaglærðir
og því reynt að halda námskeið af ólíkum toga þeim til
stuðnings. Starfsfólk
var ötult við að afla sér upplýsinga frá öðrum
leikskólum um til dæmis hópastarf, val og þema og kynnti sér
vel Uppeldisáætlun fyrir leikskóla: Markmið og leiðir,
þ.e. undanfara þeirrar Aðalnámskrár sem við nú styðjumst við.
Á 40 ára afmæli leikskólans, í október 1997, höfðu aðeins
þrír lærðir leikskólakennarar unnið við Leikskólann í Stykkishólmi fyrir
utan Systur Lovísu og þá ekki nema einn í einu og í mjög mislangan tíma.
Þannig var Agnes Agnarsdóttir hér árin 1983-1986, Kristín
Vilhelmsdóttir 1993-1995 og loks leikskólastjórinn okkar, Sigrún
Þórsteinsdóttir, sem tók til starfa
1.
ágúst
1997, þegar Stykkishólmsbær tók alfarið yfir rekstur leikskólans.
Við það varð einnig til ný staða í skólanum þ.e.
aðstoðarleikskólastjóri, og var Gunnsteinn Sigurðsson þroskaþjálfi
fyrstur til að gegna þeirri stöðu.
Í kjölfar þess að hér kom lærð fóstra
1993,
kom fyrsti neminn hingað að vori 1994 í verknám og var í tvo mánuði
öllum til ánægju og fróðleiksauka.
Síðan þá hafa allmargir nemar sótt í að koma í vettvangsnám til okkar og
vonum við að áframhald verði á því í framtíðinni.
Fyrsti sérstuðningur við börn hófst haustið 1993 og var
honum sinnt af ófaglærðum starfsmönnum
í
leikskólanum en í nánu
samstarfi við þroskaþjálfa sem starfar á svæðisskrifstofu fatlaðra.
Þeim börnum sem þurfa á stuðningi að halda fjölgar ört og enn er gott
samstarf við svæðisskrifstofuna,
auk þess sem Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga hefur nú tekið til
starfa, en sérfræðingar hennar koma reglulega í leikskólann.
Við leikskólann er starfandi foreldrafélag og hefur það
starfað frá árinu 1989. Fulltrúar í það eru valdir af öllum deildunum
3
og eru þeir ca. 5 talsins þar af 1 formaður. Félagið er mjög virkt og
heldur fundi sína mánaðarlega. Það hefur einnig haft áheyrnarfulltrúa á
stjórnarfundum leikskólans
(nú Fræðslunefnd Stykkishólmsbæjar)
síðan í mars 1993 og þá um leið fengu
starfsmenn leikskólans sinn fulltrúa. Af föstum uppákomum félagsins má
nefna, vorferð út úr bænum, grillveislu á leikskólalóðinni,
jólaföndur með foreldrum og a.m.k. 1 fyrirlestur á ári ætlaðan foreldrum
svo sem um sorg og sorgarviðbrögð barna, tannhirðu barna og um
heilsugæslu og ónæmisaðgerðir þeirra.
Í dag eru þessir fyrirlestrar yfirleitt í tengslum við aðalfund
félagsins sem er jafnan í október ár hvert.
Foreldrafélagið stóð fyrir almennum borgarafundi
haustið 1996
og boðaði á hann bæjarstjórn og stjórn leikskólans. Ástæða
fundarboðsins var óánægja bæjarbúa með m.a. örar starfsmannabreytingar,
vöntun á uppeldismenntuðu fólki á leikskólann og vistunartímann, sem
var aðeins 4 stundir. Þetta varð mikill hitafundur og mikil pressa lögð
á stjórnirnar að finna leiðir til úrbóta. Á fundinum var reifuð sú
hugmynd hvort ekki væri hægt að styðja við starfsfólk í menntunarmálum.
Var þeirri hugmynd vel tekið. Þessi fundur hefur líklega verið kveikjan
að þeim breytingum
sem urðu í kjölfarið.
Strax næsta haust (1997) voru tveir starfsmenn leikskólans skráðir til
náms í fjarnámi í leikskólafræðum, þær Ásta Valdís Guðmundsdóttir og
Elísabet Lára Björgvinsdóttir. Útskrifuðust þær vorið 2001 og starfa enn
við skólann. Magðalena Hinriksdóttir hóf síðan diplómunám við KHÍ árið
2000 og útskrifaðist sem aðstoðaleikskólakennari vorið 2002 og leikskólakennari vorið 2005.
Síðustu árin hefur hlutfall fagmenntaðs starfsfólks því aukist til muna
og hafa að jafnaði 4-5 leikskólakennarar starfað við skólann í einu. Auk
þeirra sem áður hafa verið nefndir störfuðu Ingibjörg Sigurðardóttir hér
á árunum 1999-2001, Lóa Björk Hallsdóttir 2001-2003 og Elín Guðrún
Pálsdóttir hóf hér störf í desember 2001 og er enn einn af starfsmönnum
skólans.
|
Með breyttum aðstæðum svo sem
lengdum vistunartíma, mat í hádeginu og fjölgun deilda var ljóst
að gamla húsnæðið á Austurgötunni uppfyllti ekki lengur þær
kröfur sem gera þarf til starfsins, enda ekki byggt með slíkt í huga. Ákveðið
var því að ráðast í byggingu nýs leikskóla og var staðsetning
hans ákveðin í Tjarnarmýrinni, við Búðanesveg 2. Skólabyggingin
var í hönnun og byggingu á árunum 2005-2006 og var starfsemin
flutt um áramótin 2006-7. Fyrsti skóladagur á nýjum stað var 8.
janúar 2007 og var þá lóð fullfrágengin og húsið sjálft að mestu
leyti, fyrir utan örlítinn lokafrágang. Það eru Arkís ehf.,
Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen hf. og Landhönnun slf. sem eru
hönnuðir byggingarinnar og lóðarinnar, og byggingaraðili Skipavík hf.
Leikskólinn er þriggja deilda, með tveimur inngöngum fyrir börn
og einum fyrir starfsfólk. Möguleiki er á stækkun til vesturs um
60 m2, þannig að við bætist fjórða deildin. Gert er ráð fyrir að
í leikskólanum geti verið 75 börn samtímis, en 100 ef til
stækkunar kæmi. Skólinn er 537 m2 að brúttó flatarmáli og lóðin
6419 m2. |

Á fyrstu dögunum á nýja staðnum í janúar 2007. |
Myndir frá byggingaframkvæmdum við
Búðanesveginn
|