Bekkjarnámskrár
Almennar upplýsingar
Grunnskólinn Borgarbraut
Skrifstofa skólans er opin frá kl. 7.30 til kl. 15.00
Skólinn er opinn frá kl. 7.45
Sími: 433 8177 Fax: 438 1045
Netfang: grunnskoli@stykk.is Veffang: http://www.stykk.is
Íþróttamiðstöð
Sími: 433 8150
Frá skólastjóra
Kæru nemendur og foreldrar.
Þessi bekkjarnámskrá er hluti af skólanámskrá Grunnskólans í Stykkishólmi. Í henni er að finna nokkrar hagnýtar upplýsingar um skólastarfið í bekknum.
Skólanámskráin í heild sinni er aðgengileg á heimasíðu skólans. Í vetur verður áfram unnið að endurskoðun allrar skólanámskrárinnar og verður kynnt nánar hvenær því verki lýkur
Samstarf við foreldra er skólanum mikils virði. Mikill áhugi er á að efla það með betra og greiðara upplýsingastreymi og þar bíða okkar mörg tækifæri sem við höfum ekki alltaf nýtt okkur sem skyldi.
Starfsfólk skólans væntir góðs samstarfs við öll heimili í Stykkishólmi og Helgafellssveit á komandi skólaári eins og undanfarin ár.
Gunnar Svanlaugsson
skólastjóri
Námið
Í upphafi skólaárs leggur hver kennari fram kennsluáætlun. Umsjónarkennarar sjá um að kynna áætlanirnar fyrir foreldrum á bekkjarfundi.
Flestir kennarar gera einnig áætlanir til skemmri tíma, þ.e. vikuáætlanir eða annaráætlanir sem nemendur vinna eftir í samráði við kennara og foreldra.
Umsjónarkennarar eiga öðrum fremur að fylgjast með námi og þroska allra nemenda sem þeir hafa umsjón með. Þeir eru einnig tengiliður foreldra við skólann og hafa samvinnu við foreldra eftir þörfum og geta foreldrar leitað til umsjónarkennara ef einhverjar spurningar vakna um nám eða líðan barns þeirra í skólanum.
Umsjónarkennarar hafa eins og aðrir kennarar fastan viðtalstíma fyrir foreldra og nemendur einu sinni í viku, auk þess sem hægt er að koma til kennara boðum þurfi foreldrar að ná tali af þeim utan auglýstra viðtalstíma.
Foreldraviðtöl í vetur eru við lok anna og verða tímanlega auglýst.
Sérkennsla
Í Grunnskólanum í Stykkishólmi stendur börnum til boða aðstoð ef þau eiga erfitt með nám vegna sértækra námsörðugleika, tilfinningalegra eða félagslegra örðugleika og/eða fötlunar.
Sérkennslutímum er úthlutað til þeirra nemenda sem mest þurfa á aukinni og aðlagaðri kennslu að halda. Sú úthlutun fer fram að hausti hverju sinni.
Einnig er í boði ráðgjöf til foreldra sem óska eftir sérnámsefni heim með barni sínu vegna námsörðugleika þess.
Sérkennsla innan grunnskólans fer eftir aðstæðum og erfiðleikum nemandans. Hún getur farið fram inni í bekk, í litlum hópi utan bekkjar, í námsveri eða jafnvel að nemandanum sé kennt einum. Þá er jafnframt kennt í sérdeild innan skólans með blöndun í almenna bekki eftir aðstæðum.
Stuðningsfulltrúar sinna bæði einstökum nemendum og veita aðstoð inn í bekk.
Forfallakennsla
Forfallist kennari er reynt að leysa viðveru nemenda með því að annar kennari hlaupi í skarðið. Skyndileg forföll raska oft áætlunum um kennslu. Reynt er að láta ekki tíma nemenda í skólanum breytast þrátt fyrir veikindi kennara nema ráðrúm gefist til að aðvara foreldra. Eldri nemendur kunna þó að verða sendir heim vegna forfalla, en reynt er að forðast það.
Heimanám
Skólinn gerir ráð fyrir að hluti af námi allra nemenda fari fram heima.
Heimavinna er nauðsynleg til frekari þjálfunar ýmissa námsþátta. T.d. byggist lestrarnám að verulegu leyti á reglulegri þjálfun heima.
Nemendur þjálfast einnig í einstaklingsvinnu og foreldrar fá tækifæri til að fylgjast með námi og vinnubrögðum þeirra.
Nauðsynlegt er að foreldrar skapi börnum sínum aðstöðu og næði til heimanáms og ættu foreldrar og nemendur að velja fastan heimanámstíma, hóflega langan.
Nokkur ráð til foreldra:
- Barnið þarf að vera sátt við þann tíma sem heimanáminu er ætlaður.
- Heimanámstíminn er settur á blað sem hengt er upp þar sem það blasir við svo auðvelt sé að minna á tímann.
- Yngri eða eldri systkini eiga helst ekki að vera nærri. Ýmsar athugasemdir frá þeim geta truflað.
- Aðstoð við heimanám reynir á samband foreldra og barns. Gæta þarf þess að aðstoðin skaði ekki það samband.
- Þolinmæði foreldra, áhugi, hrós og jákvætt viðhorf til heimanáms og vinnu barnsins er mjög mikilvægur þáttur í að styrkja barnið í námi og byggja upp námsáhuga.
Námsmat og próf
Skólinn metur færni og þekkingu nemenda miðað við gildandi námsskrá, kröfur skólans og það starf sem nemandinn hefur tekið þátt í innan skólans.
Tilgangur námsmats er...
- að afla sem öruggastrar vitneskju um árangur skólastarfsins og hvernig einstökum nemendum eða hópum gengur að ná settum markmiðum
- að afla upplýsinga sem hjálpa nemendum við námið, örva þá og hvetja til að leggja sig enn betur fram
- að veita nemendum og foreldrum þeirra, kennurum, viðtökuskólum og skólayfirvöldum upplýsingar um námsgengi nemenda sem m.a. má hafa að leiðarljósi við frekari skipulagningu náms
Vitnisburður er gefinn þrisvar á vetri, í nóvember, febrúar og við námslok í maí. Áhersla er lögð á að vitnisburðurinn miðist fyrst og fremst við nemendann sjálfan án samanburðar við aðra.
Einkunnir eru gefnar í heilum og hálfum tölum á kvarðanum 1-10. Í nokkrum verkgreinum eru gefnar einkunnir í bókstöfum (A, B, C)
Námsmat fer að öðru leyti fram allan námstímann og eru kennarar ávallt fúsir til að gefa foreldrum upplýsingar sé eftir þeim leitað.
Heilsdagsskóli - lengd viðvera
Við skólann er nemendum 1. - 4. bekkjar boðið upp á lengda viðveru innan skólans. Þar er lögð áhersla á nám og leiki, tómstundastarf, útivist og aðstoð við heimanám.
Heilsdagsskólinn er opinn frá kl 12.30 til 16.00 alla virka daga og geta nemendur fengið keyptan hádegismat.
Sími í heilsdagsskóla er 433 8185 Skráning nemenda fer fram hjá skólaritara á skrifstofu skólans við Borgarbraut. Þar fást nánari upplýsingar um almenna skilmála og gjaldskrá.
Starfsfólk í heilsdagsskóla:
Ragnheiður Hrefna Jónsdóttir
Gunnhildur Gunnarsdóttir
Gunnlaugur Smárason
Sérfræðiþjónusta
Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga annast sérfræðiþjónustu við Grunnskólann í Stykkishólmi. Forstöðumaður er Sveinn Þór Elínbergsson .
Félags- og skólaþjónustan er til húsa að Klettsbúð 4 á Hellissandi. Sími : 430 7800, Fax : 430 7801
Starfsfólk:
Sálfræðingur er Inga Stefánsdóttir og kemur hún að jafnaði tvisvar í mánuði.
- Kennarar geta óskað eftir tíma fyrir sig og foreldrar fyrir börn sín.
Greining, viðtöl, ráðgjöf.
Talmeinafræðingur er Ásta Sigurbjörnsdóttir (kemur eftir þörfum)
Námsráðgjafi, (sér)kennsluráðgjafi er Hulda Skúladóttir. Hún kemur vikulega í skólann (miðvikudagar) Verkefni hennar eru m.a. námsráðgjöf, kennsluráðgjöf, og greining námserfiðleika.
Félags– og skólaþjónustan er með vef þar sem hægt er að nálgast frekari upplýsingar um starfsemina. Slóðin á vefinn er:
Deildarstjóri sérkennslu í Grunnskólanum í Stykkishólmi, og tengiliður við Félags- og skólaþjónustuna, er Elín Bergmann Kristinsdóttir .
Hafið samband við umsjónarkennara eða Elínu ef óskað er eftir tímum hjá ofangreindum.
Ef grunur leikur á einelti á tafarlaust að hafa samband við umsjónarkennara!
Heilsugæsla
Heilsugæsla í Grunnskólanum felst í reglubundnu eftirliti með líkamlegu ástandi nemenda sem og sálfélagslegum þroska þeirra.
Skólahjúkrunarfræðingur hefur fasta viðverutíma í skólanum á þriðjudögum og fimmtudögum. Þá hittir hann einstaka nemendahópa, kemur inn í bekkjarkennslu og er til viðtals fyrir nemendur, foreldra og kennara um ýmis mál sem snúa að almennri líðan nemenda í skólanum. Á þriðjudögum er fastur viðtalstími frá kl: 9–12 fyrir nemendur, foreldra og kennara.
Forföll – leyfi – skólasókn
Öll forföll nemenda ber að tilkynna í skólann áður en kennsla hefst eða eins fljótt og hægt er. Umsjónarkennari hefur heimild til að veita leyfi í 1 eða 2 daga, enda sé haft samband við hann með fyrirvara. Öll leyfi til lengri tíma veitir skólastjóri að fenginni beiðni frá foreldrum.
Að fella niður kennslu vegna veðurs er neyðarúrræði. Hafi ekki komið tilkynning í útvarpi um skólalokun, en foreldrar telja veður hættulegt börnum sínum, halda þeir börnunum að sjálfsögðu heima. Aðstæður fólks til að koma börnum á milli eru ólíkar. Ábyrgðin verður að vera foreldranna og öryggi á að sitja í fyrirrúmi.
Skelli á óveður meðan nemendur eru í skólanum þurfa foreldrar að sækja börn sín í skólann eða tryggja heimför þeirra á annan hátt.
Allar fjarvistir nemenda eru skráðar, hvort sem um er að ræða veikindi, fjarvistir með leyfi eða án leyfis. Komi nemandi of seint í kennslustund er það einnig skráð.
Yfirlit um skólasókn nemenda er sent til foreldra með vitnisburðarblöðum í lok hverrar annar.
Hægt er að fá nánari upplýsingar um skólasókn nemenda með því að hafa samband við skrifstofu skólans eða umsjónarkennara nemandans.
Tapað – fundið
Skólinn getur ekki ábyrgst verðmæti í eigu nemenda sem skilin eru eftir í anddyri eða á göngum. Nemendur eru áminntir um að merkja eigur sínar vandlega og geyma ekki peninga í yfirhöfnum. Finni nemandi eitthvað eða glati einhverju skal hann tilkynna það starfsfólki skólans.
Mötuneyti—nesti
Nemendur geta fengið ókeypis mjólk í skólanum.
Eðlilegt er að nemendur hafi með sér að heiman hollt og gott nesti.
Skóladegi nemenda í 1. – 4. bekk lýkur kl. 12.30 og þeir nemendur sem eru í heilsdagsskólanum borða hádegisverð í mötuneyti alla daga. Maturinn er seldur í áskrift einn mánuð í senn. Ekki er hægt að segja áskrift upp innan áskriftartímabils. Mataráskrift framlengist sjálfkrafa nema henni sé sagt upp fyrir 15. hvers mánaðar.
Aðeins er hægt að skrá nemendur í mat alla dagana og ekki verður endurgreitt vegna fjarvista eða veikinda nema þau vari samfellt í viku eða lengur. Innheimt verður fyrirfram fyrir mánuð í senn. Matseðill fjórar vikur fram í tímann verður birtur á heimasíðu skólans um 20. hvers mánaðar.
Frímínútnagæsla
Í skólanum eru 2 kennarar á gæslu í fimmtán mínútna frímínútum ásamt gangavörðum og 2 “skólavinum” sem eru nemendur úr 10. bekk. Í styttri frímínútum eru tveir gangaverðir á gæslu inni ásamt tveimur kennurum úti.
Foreldrafélag
Við skólann starfar foreldrafélag. Skipulag þess er með þeim hætti að foreldrar hvers bekkjar mynda deild í félaginu. Deildirnar kjósa sér stjórnir á hverju ári og mynda fulltrúar þeirra sameiginlega stjórn foreldrafélagsins sem svo fundar mánaðarlega á starfstíma skóla.
Ætlast er til að stjórnir deildanna séu öðrum foreldrum fremur í nánu sambandi við umsjónarkennara, aðra foreldra í bekknum og stjórn foreldrafélagsins. Æskilegt er að stjórnir deildanna hafi frumkvæði að ýmsu sem varðar skólastarfið. Þar má nefna, bekkjarkvöld, jólaföndur, spilakvöld, aðstoð við nemendaferðir, heimsóknir og aðstoð við ýmis önnur verkefni sem upp kunna að koma. Margt fleira mætti nefna en það veltur á áhuga foreldra og umsjónarkennara hver viðfangsefnin eru hverju sinni.
Að sjálfsögðu er foreldrum alltaf heimilt að koma í heimsókn í skólann. Kennarar bjóða foreldrum stundum sérstaklega í skólann ef þá vantar aðstoð eða einhverjar uppákomur eru í gangi í bekknum.