Skólahlaupið 2007
25. september 2007
Föstudaginn 28. september verður skólahlaupið sem er orðinn árlegur viðburður hjá okkur í Grunnskólanum. 5.-10. bekkur hefja hlaupið klukkan 11:10 og 1.-4. bekkur 11:30. Allir fá glaðning frá Kaupþingi banka. Síðan verður boðið upp á grillveislu fyrir þreytta hlaupara og þá er skóladegi lokið.
Hlaupleiðirnar eru eftirfarandi fyrir 5.-10. bekk :
Stóri hringur: Hlaupið frá Grunnskólanum upp Aðalgötu,beygt við kirkjugarðinn og upp í Nýrækt, Grensásinn,Vík, (fylgja göngustíg) Borgarbraut, Skúlagötu, Austurgötu, Hafnargötu, Silfurgötu, gangbrautin yfir Aðalgötu, og að Grunnskóla.
Litli hringur : Hlaupið frá Grunnskólanum,upp Aðalgötu beygt hjá afleggjaranum upp að Golfskála, bakvið Hótelið, niður Skúlagötu, Austurgötu, Hafnargötu, Silfurgötu, gangbrautin yfir Aðalgötu, að Grunnskóla.
Barnahringur (1.-4.bekkur): Grunnskólinn, Skúlagata, Austurgata,Hafnargata, Silfurgata, gangbrautin yfir Aðalgötu, að Grunnskóla.
Þeir sem hlaupa stóra hringinn fá frítt í sund að hlaupi loknu.
Myndatökur
25. september 2007
Bekkjarmyndatökur fara fram í dag og á morgun. Sömu daga er líka hægt að fá teknar einstaklingsmyndir. Það er hann Bjarni frá Mynd í Hafnarfirði sem tekur myndirnar eins og undanfarin ár. Foreldrum er bent á að mjög mikilvægt er að kaup á myndum séu gerð og greidd fyrirfram. Blað með nánari upplýsingum á að hafa borist heim til allra. Ef ykkur vantar pöntunarblaðið er hægt að hafa samband við skrifstofuna.
Frá íþróttakennurum
14. september 2007
Frá og međ mánudeginum 17. sept. verđa íţróttatímarnir innanhússtímar. Nemendur eru vinsamlegast beđnir um ađ koma međ íţróttafatnađ samkvćmt ţví.
Félags- og skólaþjónustan
6. september 2007
Við viljum vekja athygli á því að Félags- og skólaţjónusta Snćfellinga hefur opnað nýjan vef þar sem nálgast má upplýsingar um margt sem snertir félagsþjónustuna og þjónustu við skólana. Slóðin á vefinn er http://fssf.is/
Hulda Skúladóttir náms- og kennsluráðgjafi verður vikulega hjá okkur, þ.e. á miðvikudögum. Ari Bergsteinsson sálfræðingur leysir Klöru Bragadóttur af, a.m.k. fram að áramótum. Ari verður hér í skólanum eftir miðjan september og er þeim sem óska eftir viðtali við hann bent á að hafa samband við skrifstofu skólans.
Brunaæfing
6. september 2007
Á morgun verður hin árlega brunaæfing í Grunnskólanum. Aðallega er æfð rýming húsnæðisins, bæði á Skólastíg og við Borgarbraut. Þegar brunabjallan gellur þá eiga krakkarnir að fara út eftir ákveðnum leiðum með kennurum sínum og safnast á tiltekinn stað þar sem kannað er hvort allir eru ekki örugglega mættir. Á Skólastíg safnast nemendur saman í matsal Dvalarheimilisins og á Borgarbrautinni fara allir út á pallana í Íþróttahúsinu.
Slökkviliðið mætir með bílana og liðsmenn í búningum, þar á meðal reykkafara, og það er til þess að minna á alvöru málsins og líka til þess að venja litlu krakkana við hið "ógnvekjandi" útlit grímuklæddra reykkafara.
Á hverri brunaæfingu lærum við betur hvað þarf að varast og hvað má betur fara.
Matseðill
30. ágúst
Matseðil fyrir september er hægt að skoða með því að smella á tengilinn hér að ofan. Það er veitingahúsið Fimm fiskar sem sér um matinn og fyrirkomulagið er með sama sniði og undanfarin ár.
Skólabyrjun 2007
21. ágúst 2007
Skólaár nemenda hefst mánudaginn 27. ágúst.
Nemendur 1. - 4. bekkjar mæti kl. 11.00 í skólann á Skólastíg.
Nemendur 5. - 10. bekkjar mæti kl 10.00 í skólann á Borgarbraut.
Kennsla samkvæmt stundaskrá hefst þriðjudaginn 28. ágúst í öllum bekkjum nema 1. bekk.
Foreldrar 1. bekkinga verða boðaðir í viðtöl hjá umsjónarkennara mánudaginn 27. og þriðjudaginn 28. ágúst. Nemendur 1. bekkjar mæta samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 29. ágúst.
Lengd viðvera (heilsdagsskóli) frá kl. 12.30 til 16.00 stendur nemendum í 1. - 4. bekk til boða. Þeir sem óska eftir lengdri viðveru fyrir börn sín eru beðnir um að sækja um hana sem fyrst á sérstökum eyðublöðum sem má nálgast á skrifstofu skólans eða í Ráðhúsinu.
Innkaupalistar
Innkaupalisti 1. bekkjar
Innkaupalisti 2. bekkjar
Innkaupalisti 3. bekkjar
Innkaupalisti 4. bekkjar
Innkaupalisti 5. bekkjar liggur frammi í Sjávarborg.
Innkaupalisti 6. bekkjar
Innkaupalisti 7. bekkjar
Innkaupalisti 8. bekkjar
Sumarleyfi
19. júní 2007

Skrifstofa skólans verður opin að loknu sumarleyfi frá 13. ágúst.
Skólasetning verður 27. ágúst. Nánari tímasetningar auglýstar síðar.
Við þökkum fyrir gott skólaár og óskum öllum ánægjulegs sumarleyfis.
Skóladagatal næsta árs
6. júní 2007
Skóladagatal fyrir næsta ár hefur verið sett á netið. Skólasetning verður 27. ágúst og fyrsti skóladagur nemenda samkvæmt töflu verður 28. ágúst.