Heimasíða Lúðrasveitarinnar
28. apríl 2008
Lúðrasveit Stykkishólms er búin að vera með eigin heimasíðu nú í nokkrar vikur eins og margir vita. Það gleymdist hjá okkur að setja tengil á síðuna þeirra hér og um leið og við bætum úr því þá óskum við Lúðrasveitinni til hamingju með vefinn og þökkum þeim fyrir gott samstarf.
Árshátíð yngri deilda
22. apríl 2008
Í kvöld verður árshátíð yngri deilda (1. til 7. bekk) haldin á Hótel Stykkishólmi. Dagskráin hefst kl. hálfsjö og verður hver bekkur með skemmtiatriði. Miðaverð er kr. 600 fyrir 6 ára og eldri. Eftir dagskrána verður boðið upp á kaffi og skúffuköku og pizzu og djús fyrir börnin.
Samræmd próf í 10.
21. apríl 2008
Í næstu viku hefjast samræmd próf í 10. bekk. Fyrsta prófið verður þriðjudaginn 29. apríl en það síðasta 8. maí. Nemendur hafa val um hvaða próf þeir taka, margir þreyta öll 6 prófin en aðrir velja í samræmi við það nám sem þær ætla að stunda á næstu árum. Nokkrir nemendur úr 9. bekk taka eitt til þrjú próf.
Meðan prófin eru verður ekki kennt samkvæmt stundaskrá hjá 10. bekk.
Árshátíð
16. apríl 2008
Á morgun verður haldin árshátíð nemenda elstu bekkjanna (7. - 10.). Eins og undanfarin ár verður hún með því sniði að krakkarnir mæta í sínu fínasta pússi í kvöldverð á Hotel Stykkishólmi og eftir hann verður ball í X-inu með hljómsveitinni Draugabanarnir.
Látum fylgja með eina mynd frá fyrri árshátíð til að minna á stemminguna:
Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar
10. apríl 2008
Lokahátíðin fór fram í kirkjunni í gærkvöldi og var hátíðleg og skemmtileg að vanda. Krakkarnir stóðu sig allir með prýði, hvort sem voru lesarar eða tónlistarfólkið. Úrslit urðu þau að í 1. sæti var Gauti Daðason, Stykkishólmi, í 2. sæti Birgitta Rún Baldursdóttir, Snæfellsbæ og í 3. sæti Hilmar Leó Antonsson úr Snæfellsbæ. Sigurvegurunum þremur óskum við til hamingju og einnig hinum sex nemendunum því allir eru sigurvegarar í upplestrarkeppninni eins og formaður dómnefndarinnar komst að orði við verðlaunaafhendinguna.
Hér sjást keppendur ásamt kennurum sínum:
Hérna er svo mynd af þeim sem fengu verðlaun fyrir 1. - 3. sæti ásamt fulltrúa Sparisjóðs Ólafsvíkur sem styrkir keppnina með því að gefa verðlaunafé:
Loks er hér mynd af fulltrúum okkar skóla, þeim Gauta, Óttari og Helenu Björk:
Skarphéðinn
8. apríl 2008
Í kvöld verður úrslitakeppnin í Skarphéðni haldin í X-inu. Um 3. sæti keppa lið 7. bekkjar og 10. bekkjar en úrslitaviðureignin er milli 8. bekkjar og 9. bekkjar
Allir eru hvattir til að mæta og fylgjast með skemmtilegri keppni sem hefst kl. 20.00.
7. bekkur
4. apríl 2008
Í gær voru valdir þátttakendur 7. bekkjar í Stóru upplestrarkeppninni sem fer fram hér í Stykkishólmskirkju miðvikudaginn 9. apríl kl. 20.00
Krakkarnir stóðu sig allir með miklum sóma og auðheyrt og -séð að þeir höfðu tekið miklum framförum í upplestrinum. Þeir nemendur sem voru valdir til þess að keppa fyrir hönd bekkjarins voru Gauti Daðason, Helena Björk Hrannarsdóttir og Óttar Sigurðsson.
Hérna er mynd af glöðum hópnum með Helgu íslenskukennara þeirra sem hefur æft með þeim upplestur í vetur.
Upplestrarkeppnin
1. apríl 2008
Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar á Snæfellsnesi fer fram hér í Stykkishólmskirkju miðvikudagskvöldið 9. apríl. Þá keppa nemendur úr 7. bekkjum grunnskólanna á Snæfellsnesi.
Keppendur úr okkar skóla verða valdir á bekkjarsamkomu 7. bekkjar núna á fimmtudaginn og þá kemur í ljós hvaða þrír nemendur verða fulltrúar Grunnskólans í Stykkishólmi þann 9. apríl. Foreldrar 7. bekkinga eru hvattir til að mæta á kvöldvökuna næsta fimmtudag eins og auglýst var í dreifibréfi.
Skarphéðinn
1. apríl 2008
Spurningakeppnin Skarphéðinn hófst í morgun með þremur viðureignum. 8. bekkur vann 7. í fyrstu viðueigninni, 10. bekkur lagði 8. bekk og 7. bekkur tapaði naumlega fyrir 9. bekk.
Á morgun verður haldið áfram og eftir helgina verða svo úrslitakeppnirnar í félagsmiðstöðinni X-inu.
