Fréttir í apríl og maí 2007
Jarðhitaverkefni 9. bekkja í Kolding og Stykkishólmi
29. maí 2007
Vefsíður um jarðhitaverkefnið unnu dönsku og íslensku krakkarnir saman. Nemendur Lyshøjskolen fóru í heimsókn á Nesjavelli og fengu góða kynningu á starfseminni þar og kræktu líka í upplýsingar í bæklingum, sem þeir tóku með sér hingað heim. Hörður Karlsson tók á móti báðum hópunum, útskýrði hitaveitukerfið hér í bæ og sýndi þeim varmaskiptinn og kaldavatnsbólið okkar uppi við Svelgsá. Skólaverkefni heimsóknarinnar fólst svo í því að þau ynnu vef um jarðhita og notkun hans og þýðingu fyrir Íslendinga. Ofið var með FrontPage forritinu, sem var flestum nýlunda. Meginmarkmið verkefnisins voru; að stuðla að samskiptum um það sem setja átti á vefinn; læra hvernig jarðhitinn er nýttur og þjálfast í notkun vefsmíðaforritsins FrontPage og allir komu frá þeirri vinnu a.m.k. nokkru ríkari og flestir náðu öllum markmiðunum með bros í hjarta.
De danske og islandske elever arbejdede sammen på denne jordvarmeweb. Eleverne fra Lyshøjskolen gik på besøg til Nesjavellir og fik en god præsentation af virksomheden der og fik også nogle kataloger taget med til Stykkisholmur. Heroppe viste Hörður Karlsson os centralvarmesystemet i byen, vekslevarmeren og koldtvandskilden oppe ved Svelgsá og forklarede det hele. Det faglige projekt handlede så om at lave en web om jordvarmen på Island, dens brug og betydning for islændinge. Webben blev lavet med webprogrammet FrontPage, som mange havde slet ikke set før. Hovedmålene med projektet var; at få eleverne til at kommunikere om det, som skulle sættes på webben; at lære om hvordan jordvarme bruges og hvad den udnyttes til; og trænes til at bruge webprogrammet FrontPage og alle gik rigere fra det arbejde på en eller anden måde og de fleste nåede hen til de forudsatte mål med smil i hjertet.
Sýning í dag
29. maí 2007
Í dag kl. 16 verður opið hús í grunnskólanum þar sem foreldrum og öðrum gestum gefst kostur á að skoða þau verkefni sem nemendur hafa verið að vinna við undanfarna dag. Auk þess er ýmislegt annað haft frammi, einkum úr list- og verkgreinum.
Það hefur mikið verið ljósmyndað undanfarna dag og við höfum reynt að setja albúm inn á myndasíðuna jafnóðum. Eitthvað fleira bætist þó við í dag.
Dagskráin næstu daga
24. maí 2007
Þriðjudagur 29. maí:
- Vinna undir stjórn umsjónarkennara, lokadagur þemavinnu
- Frágangur og sýning undirbúin
- Opinn skóli frá kl. 16 - 20.
Allir velkomnir þriðjudaginn 29. að skoða verkefni sem unnin hafa verið þessa síðustu daga. Það eru:
- Verkefni frá 1. - 3. bekk um Vatn og það er á Skólastígnum.
- Verkefni frá 4. - 8. bekk um Náttúru Breiðafjarðar eru sýnd á Borgarbrautinni.
- Samstarfsverkefni 9. bekkjar og nemenda frá Lyshöjskole um Jarðvarma.
Miðvikudagur 30. maí:
Afhending Grænfánans kl. 11.00
Nemendur 1.- 3. bekkjar mæti samkvæmt stundatöflu en nemendur annarra bekkja mæti kl. 11.00 í Barnaskólann og taka þátt í Grænfánahátíðinni sem endar með grillveislu. Að grillinu loknu fara nemendur 4. - 9. á Borgarbrautina og ganga frá stofum.
Fimmtudagur 31. maí: Skólaslit í kirkjunni kl 18.00
Góður gestur
22. maí 2007
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir forseti Skáksambands Íslands kom í heimsókn til okkar í dag og spjallaði við krakkana um skák og tefldi fjöltefli. Svona heimsókn er mikil hvatning fyrir áhugasama skákkrakka og kveikir vonandi í fleirum áhugann. Við þökkum Guðfríði Lilju kærlega fyrir komuna og setjum hér nokkrar svipmyndir með:
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
Vorverkefnið gengur vel
22. maí 2007
Verkefnið um Breiðafjörð sem krakkarnir í 4. - 8. eru að vinna gengur vel. Við ætlum að reyna að vera dugleg að setja myndir inn og nú eru nokkrar komnar frá mánudeginum.
Vorferð 3. bekkjar
21. maí 2007
3. bekkur fór í vorferð í Dalina nú fyrir helgi. Þau heimsóttu bæ Eiríks rauða, fóru í Mjólkustöðina og svo auðvitað á Leiðólfsstaði. Á myndsíðunni eru komin albúm sem segja ferðasöguna.
Svo var haldin kveðjuveisla fyrir Hreiðar og Gintare uppi í skógrækt og það eru líka myndir frá þeirri veislu.
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
Vatn, Breiðafjörður og orka
16. maí 2007
Þessar síðustu vikur skólaársins verður mikið um að vera í skólanum. Fyrsti til þriðji bekkur verða í þemanámi um vatn og fjórði til áttundi taka fyrir þemanám um lífríki og sögu Breiðafjarðar. Flestir kennarar skólans koma að verkefninu og verður gaman að sjá útkomuna sem verður til sýnis 30. maí.
Margt verður skoðað og gert en hápunktur verkefnisins verður ferð með Sæferðum út á Breiðafjörð og sjá fugla og fyrirbæri.
Góðir gestir koma í heimsókn t.d. Dagbjört Höskuldsdóttir og mun hún fjalla um lífið í eyjunum og einnig munu 7. og 8. bekkur fara í heimsókn niður á Náttúrustofu en þar mun Róbert Stefánsson fræða nemendurna um sérstöðu Breiðafjarðar.
Við munum setja umfjöllun á Mentor um gang mála sem oftast. Hefðbundin stundatafla verður ekki í gildi og falla því sérgreinatímar niður auk þess sem leikfimi og sund verða ekki kennd.
9. bekkur tekur svo á móti nemendum frá Kolding í næstu viku og þau ætla að vinna að mjög spennandi verkefni um jarðhita og orku. Það verður kynnt nánar þegar nær dregur.
Vorskólinn hófst í dag
14. maí 2007
Næstu þrjá daga eru nemendur væntanlegs 1. bekkjar að kynna sér skólastarfið á framtíðarvinnustað sínum, Grunnskólanum. Þetta er fríður hópur þar sem drengirnir eru í meiri hluta eða 16 af 21 nemanda. Hér eru nokkrar myndir af þeim þegar þau komu með Helgu Sveins og Öldu Leif, sem verður kennarinn þeirra, í tíma hjá Unni Breiðfjörð og Sesselju.
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
Samræmd próf, skólalok o.fl.
25. apríl 2007
Nú eru síðustu dagar 10. bekkinga fyrir samræmd próf sem hefjast 2. maí. Skólastarf í 10. bekk eftir prófin verður ekki samkvæmt stundaskrá nema að litlu leyti. Ferðalag, starfskynningar og skyndihjálparnámskeið eru á dagskránni hjá þeim.
Námsmati hjá nemendum 5. - 10. bekkjar verður lokið 16. maí þannig að dagarnir fram að skólaslitum verða notaðir í önnur verkefni sem nánar verður kynnt þegar nær dregur.
Vakin er athygli á að skólaslit verða 31. maí. Hér til hægri á síðunni er listi með helstu dagsetningum maímánaðar.
Gleðilegt sumar
18. apríl 2007
Um leið og við óskum öllum gleðilegs sumars þá setjum við hér myndir af farfuglum sunnan úr álfu sem hafa verið að störfum með okkur þessa viku.

Starfsdagur
18. apríl 2007
Föstudaginn 20. apríl verður frí hjá nemendum vegna starfsdags kennara. Kennarar og starfsfólk skólanna á Snæfellsnesi nota þennan dag til þess að sitja námskeið á vegum Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga.
Comenius verkefnið
17. april 2007
Í gærkvöldi komu 11 kennarar frá samstarfsskólunum okkar í Comeniusar verkefninu. Þeir verða hér fram á föstudag og auk þess að skoða sig um og kynnast skólastarfinu hjá okkur vinna kennarnir saman að verkefninu sem nær til 1. - 4. bekkjar.
Kennarnir koma frá eftir töldum löndum: Finnlandi, Spáni, Póllandi og Ítalíu. Sjá nánar á vef verkefnisins sem er í vinnslu og þar á að verða hægt að fylgjast með framvindu verkefnisins þegar meira er komið inn á hann.
Skíðaferð
2. apríl 2007
Myndir frá skíðaferðinni eru komnar á Myndasafn.













