Grunnskólinn í Stykkishólmi

 

 

Litlu jól

18. desember 2007

Á morgun, miðvikudaginn 19. desember, verða Litlu jólin haldin hátíðleg í skólanum.

Hjá nemendum í 1. - 4. bekk hefst jólastundin kl. 10. Klukkan 11.20 hefst svo jólaballið þar sem dansað verður í kring um jólatréð og jólasveinar koma kannski í heimsókn. Foreldrar eru velkomnir á jólaballið sem áætlað er að ljúki kl. 12.

Nemendur í skólanum við Borgarbraut mæta kl. 11 og eiga sameiginlega stund áður en þeir fara í stofur með sínum umsjónarkennurum.

 

Helgileikur

12. desember 2007

Hinn árlegi helgileikur yngri nemenda var í gær í kirkjunni. Sérstakir gestir voru nemendur leikskólans og einnig tók tónlistarskólinn þátt í dagskránni.

Nokkrar myndir frá helgileiknum eru á myndasíðunni.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Myndir frá föndurkvöldi

6. desember 2007

 

Inn á Myndasíðuna er búiða að setja albúm með myndum frá jólaföndrinu í 1. - 4. bekk sem var á mánudaginn var. Það má líka smella hér og skoða.