Grunnskólinn í Stykkishólmi

 

Síðasta vika fyrir jólaleyfi

15. desember 2008

Nú er síðasta vikan fyrir jólaleyfi runnin upp. Dagskráin hjá nemendum er þéttskipuð eins og undanfarna daga og ýmislegt gert til þess að létta lundina nú í svartasta skammdeginu. Hérna er því minnislisti yfir viðburði þessarar viku:

  • Mánudaginn 15. eru nemendur í 4. og 5. bekk sem eru í Litlu lúðrasveitinni að spila úti um bæinn.
  • Í vikunni ætla nemendur 3., 4. og 9. bekkjar að heimsækja íbúa Dvalarheimilisins og sjá um upplestur og söng. Tímasetningar verða nánar auglýstar af bekkjarkennurum.
  • Jólaleikfimin sívinsæla verður hjá öllum bekkjum í vikunni.
  • Fimmtudaginn 18. verða nemendur 6.-10. bekkjar með dagskrá í sundlauginni um hádegisbilið. Dagskráin er skipulögð af íþróttaráði og Róbert.
  • Fimmtudagurinn 18. er líka síðasti dagurinn til að skila úrlausnum í jólagetraun umferðarráðs.
  • Föstudaginn 19. eru svo Litlu jólin, kl. 10.00 í barnaskólanum en kl. 11 á Borgarbrautinni.

Heimsókn í Norska húsið og Narfeyrarstofu

11. desembar 2008

Í gær og í dag hafa nemendur skólans gert sér dagamun og brugðið sér í aðventuferð í bæinn. Tveir bekkir fara saman og t.d. tók 10. bekkur 1. bekk með í ferðina og þannig hafa kennarar parað saman bekki.

Þær Aldís og Sigurlína taka á móti krökkunum í Norska húsinu og sýna þeim jólasýninguna og segja frá jólahaldi fyrr á árum. Eftir heimsóknina í Norska húsið er haldið á Narfeyrarstofu þar sem Sæþór og Steina taka á móti fólkinu með heitu súkkulaði og krakkarnir lesa jólasögur eða spila jólalög hvert fyrir annað.

Hér eru tvær myndir frá heimsókn 9. bekkjar og 5. bekkjar. Fleir myndir má sjá á myndasíðunni.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Helgileikur

10. desember 2008

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hinn árlegi helgileikur yngstu bekkjanna fór fram í kirkjunni í gær. Þá léku nemendurnir frásögnina úr jólaguðspjallinu og yngri nemendur grunnskólans ásamt nemendum leikskólans hlýddu á. Hljóðfæraleikarar úr tónlistarskólanum og sr. Gunnar tóku líka þátt í athöfninni.

Nokkrar myndir má sjá hér á myndasíðunni.

 

Dagskrá í desember

3. desember 2008

Ýmsir árlegir og fastir liðir í skólastarfinu tengjast desember og jólahaldinu. Í þessari viku voru foreldrafélögin með Jólaföndur eða Jólastund með bekkjunum. Í gær þriðjudag komu nemendur í 5. - 10. bekk saman og var ýmist föndrað eða spilað. Fleiri myndir frá gærköldinu eru á myndasíðunni.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Framundan eru svo í næstu viku heimsóknir bekkjanna í Norska húsið og á Narfeyrastofu, jólatónleikar hjá tónlistarskólanum og svo sjálf Litlu jólin 19. dsember.