Grunnskólinn í Stykkishólmi

 

Fréttir í febrúar 2006

Myndir frá upplestrinum

28. febrúar 2006

Í gærkvöldi var upplestrarkeppnin haldin í kirkjunni. Þeir sem voru valdir til þess að keppa fyrir skólann í Snæfellsnes keppninni voru: Berglind Gunnarsdóttir, Jónína Riedel og Sylvia Ösp Símonardóttir.

Hér að neðan eru nokkrar myndir frá athöfninni:

 

 

 

Upplestarkeppnin

27. febrúar 2006

Í kvöld kl. 19.15 verður Upplestrarkeppni 7. bekkjar haldin í Stykkishólmskirkju.

Átta nemendur lesa sögukafla, ljóð eftir Davíð Stefánsson og ljóð að eigin vali. Dómnefnd velur þrjá þeirra sem svo fara sem fulltrúar skólans á Upplestarkeppnina á Snæfellsnesi sem verður í Ólafsvík 15. mars.

Nemendur úr Tónlistarskólanum leika á hljóðfæri milli atriða.

Ljóð unga fólksins

22. febrúar 2006

Næstu vikurnar eiga 9 - 16 ára börn og unglingar kost á að taka þátt í ljóðasamkeppni ungs fólks sem heitir Ljóð unga fólksins.

Það er Þöll, samstarfshópur um barna- og unglingamenningu á bókasöfnum, sem hratt keppninni af stað vorið 1998 og er þetta í fimmta sinn sem keppnin er haldin. Gefið verður út hefti með verðlaunaljóðunum ásamt úrvali ljóða úr samkeppninni.

Þátttakendum er skipt í tvo aldurshópa, 9-12 ára og 13-16 ára og getur hver þátttakandi skilað inn þremur ljóðum. Hægt er að skila ljóðum á bókasafn skólans eða á Amtsbókasafnið og er skilafrestur til 17. mars

Athygli er líka vakin á því að nú stendur yfir á bókasöfnum landsins kosning á bestu barna- og unglingabók síðasta árs. Hægt er að nálgast kjörseðla á skólabókasafninu og Amtsbókasafninu.

Stóra upplestrarkeppnin

20. febrúar 2006

Eins og undanfarin ár hafa nemendur 7. bekkjar lagt sérstaka áherslu á upplestur frá því í haust. Tilefnið er Stóra upplestrarkeppnin sem hefst alltaf formlega 16. nóvember, á degi íslenskrar tungu, og lýkur með héraðshátíð í mars eða apríl.

Lokahátíðin á Snæfellsnesi fer fram í Ólafsvík 15. mars og til þess að velja þátttakendur á hana verður haldin upplestrarkeppni 7. bekkjar Grunnskólans í Stykkishólmi mánudaginn 27. febrúar. Átta lesarar sem hafa verið valdir úr 7. bekk lesa þá upp ljóð og sögukafla og dómnefnd velur úr þeirra hópi fulltrúana sem keppa í Ólafsvík.

Munið eftir að taka frá mánudaginn 27. febrúar kl. 19 til 21. Nánar auglýst í vikulokin.

 

Numicon námskeið

13. febrúar 2006

Námskeið í notkun Numicon námsgagnanna var haldið í skólanum í dag. Þátttakendur voru leik- og grunnskólakennarar og þroskaþjálfar af Vesturlandi. Frá Numicon komu þær Ruth og Romey Tacon og með þeim var Oddfríður Traustadóttir sem hefur þýtt hluta efnisins á íslensku. Næsta námskeið verður í Kennaraháskólanum og svo er fyrirhugað námskeið á Egilsstöðum áður en þær stöllur halda af landi brott.

Hér að neðan eru tvær myndir frá námskeiðinu og fleiri myndir má sjá hérna.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Próftafla

9. febrúar 2006

Próftöflu fyrir 6. - 10. bekk má nálgast með því að smella á tengilinn hér að neðan:

PRÓFTAFLA

Vakin er athygli á því að mötuneytið verður starfrækt með sama hætti og aðra daga enda margir nemendur í prófum bæði fyrir og eftir hádegi

 

Lok miðannar

8. febrúar 2006

Í næstu viku verða prófdagar hjá eldri bekkjunum. Próftaflan verður gefin út á morgun (fimmtudag) og settur tengill hér á síðuna.

 

 

 

 

 

Kvenfélagið kemur færandi hendi

7. febrúar 2006

Í dag komu þær Helga Aðalsteinsdóttir og Kristborg Haraldsdóttir í heimsókn til okkar fyrir hönd Kvenfélagsins Hringsins og afhentu skólanum að gjöf námsgögn í stærðfræði. Þessi námsgögn eru frá bresku fyrirtæki sem heitir Numicon og þykja henta mjög vel til þess að hjálpa bæði ungum börnum og sérkennslu nemendum að skilja leyndardóma stærðfræðinnar. Kristborg hefur haft frumkvæði að því að efnið verður nú kynnt á Íslandi og unnið hefur verið að íslenskri þýðingu á því. Næsta mánudag verður fyrsta námskeiðið í notkun Numicon haldið hér í Stykkishólmi og verður það í umsjón Romey Tacom frá Numicon og Oddfríðar Traustadóttur. Fleiri námskeið verða svo haldin síðar í vikunni í Reykjavík og Akureyri og víðar um landið.

Nemendur og starfsfólk skólans þakkar kvenfélaginu þessa höfðinglegu gjöf og er víst að hún á eftir að nýtast vel í starfinu.

 

Orkuátak í febrúar

3. febrúar 2006

Bæjarráð Stykkishólms samþykkti á fundi sínum í gær að taka þátt í Orkuátaki Latabæjar með því að bjóða öllum grunnskólabörnum í Stykkishólmi frítt í sund í febrúarmánuði, frá og með laugardeginum 4. febrúar. Þetta á við um opnunartíma á helgum og á virkum dögum frá kl. 7:00 til 20:00. Miðað er við að börnin séu komin upp úr kl. 20:00.

 

 

Fræðsluefni

1. febrúar 2006

16. janúar síðastliðinn var Magnús Stefánsson frá Marita forvarnarverkefninu með fræðslu- og umræðufundi hjá elstu nemendunum. Um kvöldið var svo fundur með foreldrum. Magnús sendi okkur glærur sem hann notaði á foreldrafundinum og við setjum þær hér inn fyrir þá sem ekki komust á fundinn og til upprifjunar fyrir þá sem tóku þátt í fundinum. Smellið hér til þess að skoða glærurnar.