Fréttir í febrúar 2007
Styrkveiting vegna leiklistarstarfs
26. febrúar 2007
Þann 22. þessa mánaðar tók skólastjóri við styrk frá Menningarráði Vesturlands. Afhendingin fór fram við hátíðlega athöfn á Safnasvæðinu á Akranesi. Grunnskólinn í Stykkishólmi sótti um styrk vegna samstarfsverkefnis grunn- og tónlistarskóla um uppfærslu á söngleik.
Styrkveitingin var ánægjuleg viðurkenning á leiklistarstarfi því sem undanfarin ár hefur þróast í skólanum undir stjórn Lárusar Hannessonar og Auðar Rafnsdóttur. Í vetur kom svo Tónlistarskólinn til liðs við okkur og sótt var um styrk til þess að geta sett upp verk af sama metnaði og í vetur. Styrkurinn gerir okkur kleift að hefja strax undirbúning að verkefnum næsta skólaárs og hvetur nemendur og kennara til dáða.
Upplýsingar um einstaka styrki má lesa á vef Menningarráðs Vesturlands.
Veikindi
14. febrúar 2007
Því miður hafa mikil veikindi verið á starfsfólki undanfarna viku.
Við þessu er ekkert að gera nema að reyna að fylla upp í götin hjá börnunum eins og hægt er. Ekki hefur verið hægt að forfalla alla tímana hjá krökkunum, því hefur verið reynt að þjappa tímunum saman og leyfa þeim að hætta fyrr á daginn.
Við vonum að þessar breytingar hafi ekki komið að sök og að börnin hafi getað nýtt sér frítímana til undirbúings fyrir próf.
Ljóst er nú þegar að morgundagurinn verður eitthvað styttri hjá börnunum.
Að lokum minnum við á starfsdaginn á föstudaginn, þá er frí hjá nemendum.
Starfsdagur og lok miðannar
14. febrúar 2007
Föstudaginn 16. febrúar verður starfsdagur í skólanum.
Þann dag eiga nemendur ekki að mæta í skólann. Heilsdagsskólinn (lengd viðvera) verður líka lokuð þann dag.
Söngvakeppni
7. febrúar 2007
Í kvöld verður Söngvakeppni félagsmiðstöðvanna á Snæfellsnesi haldin á Hótel Stykkishólmi.
12 lið taka þátt í keppninni sem hefst kl. 18.00. Aðgangseyrir er 500,- krónur og eru allir hvattir til þess að koma og njóta þessarar skemmtunar.
Vefbækur
6. febrúar 2007
Skólinn hefur nú keypt áskrift að Vefbókum Eddu. Með þeirri áskrift hafa nemendur og starfsfólk aðgang að orðabókum og fleiri uppflettiritum hjá Eddu útgáfu. Aðgangurinn er bundinn við tölvunet skólans og tengill er hér til vinstri. Hér að neðan er listi yfir vefbækurnar:
Íslensk orðabók: Íslensk orðabók er grundvallarrit um íslenska tungu. Ný útgáfa hennar kom út 2002, nítján árum frá síðustu útgáfu og er nú í stöðugt uppfærð.
Dönsk-íslensk orðabók: Dönsk-íslensk orðabók er viðamesta og glæsilegasta orðabók um norrænu grannmálin sem gefin hefur verið út á Íslandi. Hún kom út í endurskoðaðri útgáfu árið 2004.
Íslensk-dönsk vasaorðabók: Fyrri hluti Íslensk-danskrar, dansk-íslenskrar vasaorðabókar. Fyrsta Íslensk-danska orðabókin síðan 1976. Vel hefur verið vandað til verks og þess gætt að bókin standist þær kröfur sem gera má til góðra orðabóka, þótt bókin sé smá í sniðum.
Dönsk-íslensk lögfræðiorðabók - tilraunaútgáfa: Orðasafn unnið fyrir lögfræðideild Háskólans í Reykjavík í ritstjórn Halldóru Jónsdóttur.
Íslensk-ensk orðabók: Íslensk-ensk orðabók eftir Sverri Hólmarsson, Christopher Sanders og John Tucker. Hún kom fyrst út hjá Iðunni 1989.
Ensk-ensk orðabók/orðanet: WordNet 2.1 frá Princeton háskóla í Bandaríkjunum. Hér er um að ræða ensk-enska orðabók eða orðanet. Verkið má nota líkt og hefðbundna orðabók en einnig til að leita eftir merkingarvenslum orða og orðhópa, t.d. til að finna samheiti, undir- og yfirheiti. (ókeypis)
Nöfn Íslendinga: Nöfn Íslendinga hefur að geyma öll þau nöfn sem Íslendingar hafa borið frá því að manntal var fyrst tekið árið 1703 og til ársins 1990. Getið er uppruna nafnanna, merkingu þeirra, aldurs og tíðni. Höfundar eru Guðrún Kvaran, forstöðumaður Orðabókar Háskólans, og Sigurður Jónsson frá Arnarvatni.
Kortabók Íslands: Í Kortabók Íslands er landinu skipt upp í 60 kortasíður og er gott yfirgrip á milli þeirra sem gerir notkun bókarinnar mjög þægilega. Yfir 9.000 örnefni leitarhæf í vefútgáfu. (ókeypis)
Samtíðarmenn: Stórvirkið Samtíðarmenn hefur að geyma æviágrip 1700 Íslendinga sem verið hafa áberandi í samfélaginu og vakið athygli fyrir störf sín á undanförnum árum. Gefin út árið 2003. (ókeypis)
Laxnesslykill: Með orðstöðulykli verka Halldórs Laxness er hægt að leita í öllum textum hans að hvaða orði eða orðmynd sem er og fá uppgefið í hvaða verkum þau koma fyrir.
Sagnalykill: Í orðstöðulykli Íslendingasagna má leita að hvaða orði eða orðmynd sem er og fá uppgefið í hvaða sögum þau koma fyrir.
Eldri fréttir:
febrúar 2007
janúar 2007
nóvember og desember 2006
október 2006
ágúst og september 2006
maí 2006
mars og apríl 2006
febrúar 2006
janúar 2006