Aftur til fortíðar
4. mars 2008
Það er líf fjör á þemadögunum. Krakkarnir eru að vinna með tímabilið í kringum 1960 og tískan og tónlistin er skoðuð, líka bílarnir og bíómyndirnar, hárgreiðslan, brilljantínið og rúllurnar...
Hér eru nokkrar myndir en sérstakur ljósmyndahópur er að störfum og þau ætla að setja saman myndasýningu í vikulokin.


Þemadagar
28. febrúar 2008

þemadagar verða í skólanum vikuna 3. - 7. mars. Í 5. - 10. bekk munu nemendur velja sér hópa til að vinna í þessa viku og verður skólastarfið því með öðru sniði en venjulega.
Viðfangsefni þemadaganna er fyrri hluti sjöunda áratugarins (1960 -65). Við ætlum að skapa stemningu eins og hún var á þessum tíma m.a. með hjálp tónlistar frá þessum tíma og tísku.
Ekki verður farið eftir hefðbundinni stundatöflu og en miðað er við að skóladegi nemenda ljúki um kl. 14.
þeir nemendur í 8. - 10. bekk sem eru í hljómsveit og leiklistinni verða alla vikuna á æfingum með Martin og leikstjórunum Auði og Lárusi. Skólasýning á leikritinu verður svo á föstudagsmorgninum.
7. og 8. bekkur í ferðalögum
25. febrúar 2008
Í gær fóru 7. bekkingar í skíðaferðina til Dalvíkur. Þar verða þau fram á miðvikudag og með þeim í ferðinni eru íþróttakennararnir Róbert og Fríða og fulltrúar úr foreldrafélagi eru Erna Guðmundsdóttir og Lárus Fr. Hallfreðsson.
Allt gott er að frétta af skíðafólkinu sem nýtur náttúrfegurðar og útiveru næstu dagana.
Í morgun héldu svo nemendur 8. bekkjar í skólabúðir að Laugum í Sælingsdal. Með þeim er umsjónarkennari þeirra, Elísabet Valdimarsdóttir. Krakkar úr 8. bekk Grunnskóla Grundarfjarðar eru í sömu ferð líkt og var í fyrra.
Rafheimar og Skólaþing
19. febrúar 2008

Fimmtudaginn 14. febrúar fór 10. bekkur í ferð til Reykjavíkur ásamt kennurunum Auði, Ingunni og Eyþóri. Farið var í heimsókn í Rafheima þar sem Stefán Pálsson og Kjartan tóku á móti hópnum og fræddu um rafmagnið og leyfðu krökkunum að taka þátt í alls konar tilraunum og verkefnum sem tengdust rafmagni. Sumir skoðuðu líka safn gamalla muna úr sögu rafvæðingarinnar og höfðu mestan áhuga á þeim hluta.
Heimsókn í Rafheima hefur verið árlegur viðburður undanfarin ár enda eru móttökurnar þar mjög góðar og verkefnin fræðandi og skemmtileg.
Eftir hádegishlé var farið á Skólaþing. Þar brugðu nemendur sér í hlutverk alþingismanna og afgreiddu þrjú frumvörp á tæpum þremur klukkutímum. Meðal þeirra sem tóku á móti hópnum á skólaþinginu var Birgitta Bragadóttir fyrrverandi kennari við skólann en hún er nú starfsmaður á Alþingi. Sturla Böðvarsson forseti alþingis kom líka í heimsókn og spjallaði við "nýja þingmenn" og fylgdist með umræðum og afgreiðslu mála. Skólaþing er nýtt fræðsluverkefni Alþingis sem krakkarnir höfðu mjög gaman af að taka þátt í.
Myndir frá heimsóknunum eru á Myndasafninu hér til hliðar.
Grænfáninn
18. febrúar 2008
Yngri deildir skólans fengu sl. vor afhentan Grænfánann eins og allir muna. Nú hafa verið settar upplýsingar um Grænfánaverkefnið á vefsíðu sem má nálgast hér til vinstri. Undirbúningsvinna er hafin með eldri deildum og stefnt að því að í framtíðinni verði Grænfáninn við hún á báðum flaggstöngum skólans.
Umsjón með Grænfánaverkefninu hjá okkur hefur Sesselja Kristinsdóttir.
Lok miðannar
13. febrúar 2008
Í næstu viku lýkur miðönninni. Einungis verða sérstakir prófdagar í 10. bekk að þessu sinni, þ.e. mánudag, þriðjudag og miðvikudag. Einkunnir og námsmat vegna miðannar verður svo afhent nemendum mánudaginn 24. febrúar.