Grunnskólinn í Stykkishólmi

 

 

Fleiri myndir

13. febrúar 2009

Tvö albúm hafa bæst við á MYNDASAFNINU. Þetta eru myndir frá skautaferð yngri deilda frá því fyrr í vikunni. Þau fóru upp á Skjaldarvatn og léku sér þar með kennurum og fleirum.

Svo er samansafn mynda úr 3. og 4. bekk í einu albúmi. Þær myndir eru m.a. frá þorrablóti, skákæfingum, jólaföndri og fleiri viðburðum.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Árshátíð

11. febrúar 2009

Nú hafa verið gefnar út dagsetningar vegna árshátíðar. Eins og áður verður árshátíðin tvískipt og með svipuðu sniði og fyrri ár. Nemendur 1. - 6. bekkjar sýna leikþætti og skemmtidagskrá í Hótelinu og skúffukaka á eftir. Nemendur 7. - 10. bekkjar verða með hátíðarkvöldverð og stutt atriði frá hverjum bekk á Hótelinu og þar á eftir alvöru ball.

Yngri nemendur halda sína hátíð miðvikudaginn 18. mars og þeir eldri fimmtudaginn 19. mars.

Dagskrá framundan

5. febrúar 2009

Um miðjan febrúar lýkur miðönn með námsmati og í framhaldi af því foreldraviðtölum. Próftöflur hjá þeim bekkjum þar sem verða haldin próf verða birtar fljótlega.

Þá eru líka framundan nemendaferðir, s.s. hjá 7. bekk sem fer í skíðaferð til Dalvíkur 16. - 18. febrúar og einnig fer 8. bekkur í Unglingabúðirnar á Laugum í Sælingsdal vikuna 16. - 20. þessa mánaðar.

Árshátíð er fyrirhuguð í mars og nánari dagsetningar liggja fyrir fljótlega.

7. bekkur er að æfa sig í upplestri og lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar hér á Snæfellsnesi hefur verið dagsett þann 10. mars í Ólafsvík.

 

Skautaferð

2. febrúar 2009

5. bekkur fór gangandi í skautaferð upp að flugvelli á föstudaginn.  Þar er lítið slétt svell, þakið snjó.  Krakkarnir létu það ekki á sig fá og skemmtu sér í blíðunni. Fleiri myndir á MYNDASAFNINU.