Grunnskólinn í Stykkishólmi

 

Fréttir í janúar 2006

 

Bóndadagur og íþróttakeppni

20. janúar 2006

Í dag er fyrsti dagur í Þorra, bóndadagurinn, og af því tilefni var þjóðlegur þorramatur á borðum í nestisstund 8. bekkjar. Nokkrar myndir voru teknar í stofunni hjá þeim og þær má sjá hér.

Tvær síðustu kennslustundirnar voru svo notaðar til þess að berja á kennurum, það er að segja nemendur skoruðu á kennara í íþróttakeppni. Ekkert var gefið eftir og mál manna að kennarar hafi staðið sig betur í hægari greinunum og þá hafi sárvantað skiptimenn í hraðagreinum. Kennarar unnu þó upp snerpuskortinn með því að nýta sér líkamsburðina, einkum í handboltanum. Annars sést vel hve hraðir leikirnir voru þegar myndirnar eru skoðaðar því þær eru flestar hreyfðar eins og sést á myndinni hér að neðan þar sem kennarar koma á skriðþunganum og klíndu svo boltanum í bláhornið.

 

Frostrósin

18. janúar 2006

Í kvöld eru úrslitin í stuttmyndasamkeppni skólans og Félagsmiðstöðvarinnar X-ins. Sýningar hefjast kl. 20.00 og verður sýnt á stóru tjaldi í X-inu. Keppnin hefur gengið undir nafninu Frostrósin undanfarin ár og nú eru sex myndir sem dómnefndin þarf að velja úr. Þær eru:

Saving Private Siggi eftir 9. bekkingana Axel, Andra, Alex, Egil, Bigga, Kristján Pétur, Sigga Konn, Guðna og Sigurvin.

Jólamyndin eftir nemendur úr 8. bekk. Sú mynd var jólagjöf til foreldra og má geta þess að héraðsdýralæknirinn leikur stórt hlutverk í henni.

Femini er mynd með dönsku tali eftir Ágúst, Sunnu, Kikku, Steinar og Geira úr 10.bekk.

Sick & tired er með ensku tali og höfundar hennar eru 10. bekkingarnir Sigrún, Auður, Unnur, Ágúst, Hreiðar, Agnes, Brynja, María og Sunna.

Körfuboltakennsla er eftir þá Egil, Ása, Kristján Pétur, Guðna og Nonna úr 9. bekk.

Elvene fem er svo mynd á dönsku eftir Gunnhildi, Söndru, Evelinu, Heiðu og Auði úr 10. bekk.

 

Marita forvarnarverkefnið

16. janúar 2006

Fundur fyrir foreldra barna í Stykkishólmi er í kvöld, mánudaginn 16. janúar, klukkan 17:30 í Grunnskólanum.

Fyrirlestur um fíkniefnavarnir. Fræðsla um skaðsemi fíkniefna og hvað við getum gert til að sporna við fíkniefnaneyslu unglinga.

Hjónabandssæla

10. janúar 2006

Síðustu sýningar á söngleiknum Hjónabandssæla verða í þessari viku. 9. sýning verður Í kvöld kl. 20 og 10. og síðasta sýning fimmtudagskvöldið 12. jan. kl. 20.00.

Sýnt er í félagsmiðstöðinni X-inu og eru miðar seldir við innganginn en líka er hægt að panta miða á skrifstofu skólans í síma 433 8177.

Það eru nemendur í 9. og 10. bekk sem hafa í vetur verið í leiklistarvali sem sjá um sýninguna. Leikritið er eftir Lárus Hannesson sem ásamt Auði Rafnsdóttur hefur borið hitann og þungann af þessu verkefni.

Allir þeir sem ekki hafa séð sýninguna eru hvattir til að láta þetta ekki fram hjá sér fara og eiga skemmtilega kvöldstund í gamla samkomuhúsinu.

 

 

 

Nýtt útlit...

Viti

Eins og sjá má hefur verið flikkað aðeins upp á útlitið á forsíðunni okkar - og var það löngu tímabært. Gamla síðan svaraði ekki lengur kröfum tímans og kom t.d. brengluð út í nýrri vefskoðurum. Enn sem komið er hefur aðeins forsíðan fengið andlitslyftingu og ætlunin er að bæta við efnið fljótlega.

Það er þó innihaldið sem skiptir meira máli en útlitið og markmiðið er að þessi síða verði eins konar gátt eða inngangur að skólanum. Héðan eiga nemendur, foreldrar, kennarar og aðrir gestir að eiga greiðan aðgang að upplýsingum um skólastarfið.

Mentor verður aðalupplýsingaveitan til foreldra og þar birtast fréttir og tilkynningar frá kennurum og skólastjóra til foreldra. Nokkrir kennarar nota Skólatorgið jafnframt og þess vegna er tengill í það hér að ofan. Ætlunin er líka að setja líka inn fréttir og myndir hér á forsíðuna svo hún verði meira "lifandi" en hún hefur verið fram að þessu.

Vetrarkvöld við Maðkavík

Maðkavík