Grunnskólinn í Stykkishólmi

 

Fréttir í janúar 2007

Myndir

25. janúar 2007

Eldri nemendur skólans nýttu góða veðrið á mánudaginn var og skelltu sér á skauta á Helgafellsvatn. Svellið var rennislétt og sáust ýmis tilþrif á ísnum. Nokkrar myndir hafa verið settar á myndasíðuna.

skautaferð

Stefnt að skautaferð...

14. janúar 2007

Veðurspáin fyrir næsta sólarhringinn er svona: Norðaustan 8-13 m/s og él. Frost 2 til 7 stig. Það þýðir að það verður líklega heldur meiri vindur en var í dag kl. 18 og einhver éljagangur. Samt ætlum við að stefna að því að fara í skautaferð með 1. - 5. bekk upp á Skjaldarvatn þar sem er gott svell þessa dagana. Farið verður með rútu kl. 10.30 og aftur í skólann í síðasta lagi kl. 12.00. Þannig að nú er bara að búa sig vel og allir þeir sem eiga skauta hafi þá með sér í skólann í fyrramálið.

Skautaferð

12. janúar 2007

Ef veður leyfir næsta mánudag (15. jan.) er fyrirhugað að 1. - 5. bekkur bregði sér í skautaferð upp að Skjaldarvatni. Þá yrði farið með rútu uppeftir kl. 10.30 og aftur í skólann um 12.00.

skautaferðVeðurhorfurnar ættu að liggja fyrir á sunnudagskvöld og þess vegna ætlum við að setja inn auglýsingu um það inn á Mentor og hér á síðuna kl. 20.00 á sunnudag. Foreldrar eru beðnir um að fylgjast með tilkynningum um þetta.

 

 

 

 

 

 

Gleðilegt nýtt ár

3. janúar 2007

flugeldarKennsla hófst á nýju ári í morgun. Þær breytingar hafa orðið á kennaraliðinu að Elísabet Valdimarsdóttir er komin aftur til starfa eftir veikindaleyfi og bjóðum við kennarar og nemendur hana hjartanlega velkomna.

Hallfreður Lárusson húsvörður er líka kominn til starfa aftur eftir veikindi og bjóðum við hann velkominn um leið og Guðmundi Teitssyni eru færðar bestu þakkir fyrir samstarfið í haust.

 

 

 

 

 

 


 

Eldri fréttir:

nóvember og desember 2006
október 2006
ágúst og september 2006
maí 2006
mars og apríl 2006
febrúar 2006
janúar 2006