bolla, bolla.... og í framhaldi af því átröskun(!)
31. janúar 2008
Næsta mánudag er bolludagur og þá hefur verið til siðs að hafa löngu frímínúturnar lengri en venjulega. Áður fóru krakkarnir heim í bollukaffi en þó það sé nú liðin tíð gefst góður tími í skólanum fyrir bolluát hjá þeim sem það vilja.
Þennan dag verður líka starfsmannafundur í skólanum og þar mun Kolbrún Marelsdóttir ræða um forvarnir vegna átröskunar. Foreldrum er svo boðið á fund um sama efni í skólanum kl. 18.00

Öskudagur er svo auðvitað á miðvikudeginum, eins og lög gera ráð fyrir. Þá lýkur kennslu kl. 12.30 og dagskrá öskudagsins hefst með hinni geysivinsælu furðufatagöngu kl. 13.30 við barnaskólann á Skólastíg.
Kl. 16.00 verður sprell og húllumhæ hjá yngstu kynslóðinni í Íþróttahúsinu og um kvöldið ætla nemendur 7. - 10. bekkjar að skemmta sér í félagsmiðstöðinni X-inu.
Heimsókn á verkstæði
25. janúar 2008

Þriðji og fjórði bekkur fóru í síðustu viku í heimsókn á bæði bílaverkstæðin í tengslum við námsefni í samfélagsfræði. Sjá: Myndasafnið
Það var sérlega vel tekið á móti þeim og í Ásmegin var forstjórinn meðvitaður um að segja þeim að t.d. væri mikilvægt að læra ýmislegt í heimilisstörfum sem barn því það gæti komið sér vel á verkstæði. Þarna var þvottavél og snúrur (sjá mynd) og svo þyrfti alltaf að vera að sópa gólfin. Hann fræddi þau einnig um hvað þyrfti að læra til að vinna á svona stað og passaði uppá starfsmenn sínir segðu frá ákveðnum þáttum, vel undirbúið.
Einn splunkunýr bíll var fyrir utan og greinilegt að vélin og allt í kring er brunnið en það fór flugeldur undir bílinn um áramótin og kveikti í honum.
Því miður var bara myndavél meðferðis þegar hópurinn fór í í Ásmegin en ekki á Dekk og smur. Bekkirnir senda starfsmönnum verkstæðanna kærar kveðjur með þakklæti fyrir móttökurnar.
Morgunleikhús
15. janúar 2008
Skólastarfið á nýju ári er nú komið á fullan skrið. Í morgun fóru nemendur í elstu bekkjunum á leiksýningu í X-inu. Þar var Stopp-leikhópurinn með sýningu á leikritinu Óráðni maðurinn eftir Þorvald Þorsteinsson. Í kynningu á verkinu segir m.a. þetta:
"Þetta er leikrit sem býr yfir bráðskemmtilegu hráefni til heilabrota um lífið og tilveruna. Efni sem nýta má með ýmsum hætti, hvort sem er í lífsleiknikennslu eða til uppbyggilegrar umræðu innan skólaveggjanna".
Tíminn fram að páskum er annasamur hjá nemendum. Leiklistarhópur 9. og 10. bekkjar er byrjaður að undirbúa sýningu á frumsömdum söngleik sem verður frumsýndur fyrstu helgina í mars og sýningum lokið um það leyti sem nemendur fara í páskaleyfi.
Nemendur 8. bekkjar verða í skólabúðum á Laugum með krökkum úr Snæfellsbæ og Grundarfirði síðustu vikuna í febrúar.
Þá eru nemendur í 7. bekk farnir að undirbúa sig undir Stóru upplestrarkeppnina sem verður haldin hér í aprílbyrjun. Og svo eru auðvitað miðannarpróf og annað námsmat eftir miðjan febrúar.
Nánari tímasetningar helstu viðburða verða kynntar fljótlega.
Gleðilegt nýtt ár
3. janúar 2008
Grunnskólinn sendir nemendum og fjölskyldum þeirra bestu óskir um gleðilegt nýtt ár með þökk fyrir það liðna.
Starfsfólk mætti til vinnu í dag að loknu jólaleyfi og á morgun, föstudaginn 4. janúar , hefst kennsla samkvæmt stundaskrá hjá öllum bekkjum.