Grunnskólinn í Stykkishólmi

 

Góð heimsókn

26. janúar 2009

Í morgun fengu strákarnir í 1. bekk góða heimsókn þegar heimilisfræðitíminn þeirra var að byrja. Þar voru á ferðinni konur úr Kvenfélaginu Hringnum sem höfðu tekið sig til ásamt fleiri félagskonum og saumað svuntur fyrir yngstu nemendurna.

Drengirnir voru mjög glaðir með þessa höfðinglegu gjöf og sögðust aðspurðir verða miklu betur í stakk búnir til þess að baka og elda. Stóru svunturnar sem til voru í stofunni hafa fram að þessu hamlað eðlilegri hreyfingu þeirra en eins og allir vita þá krefjast heimilisstörfin þess að menn séu snarir í snúningum. Að lokinni mátun og myndatöku drifu þeir sig í handþvottinn því ekkert slór er liðið í heimilisfræðinni hjá henni Mögdu.

Skólinn þakkar Kvenfélagskonum fyrir hlýhug þeirra í garð skólans en hann hafa þær oft sýnt áður í verki.

 

 

Skólaþing

21. janúar 2009

Í gær fór 10. bekkur í heimsókn til Reykjavíkur og heimsótti Skólaþingið sem er náms- og kennsluverkefni um starfsemi Alþingis. Einnig fór hópurinn í heimsókn í Þjóðmenningarhúsið og skoðaði Surtseyjarsýninguna. Fararstjórar voru þeir Einar Gunnarsson og Sigurður Þorvaldsson.

Það var óneitanlega sérstakt fyrir krakkana að vera í þingheimsókninni þennan tiltekna dag sem var eins og allir vita sérstakur vegna mótmælanna á Austurvelli. Tekið var á móti hópnum kl. rúmlega tíu og var dagskránni á Skólaþingi lokið milli hálfeitt og eitt. Þá var kominn talsverður mannfjöldi á Austurvöll og fylgdust krakkarnir með því sem þar fór fram áður en haldið var í Þjóðmenningarhúsið.

Hér eru nokkrar myndir af þinghaldinu á Skólaþingi sem fór friðsamlega fram.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Vikurnar framundan

14. janúar 2009

Hefðbundið skólastarf er nú komið vel í gang eftir jólaleyfi og áramótin. Nýr starfsmaður bættist í hópinn en það er Steinunn María Þórsdóttir kennari sem tók við umsjónarkennslu í 2. bekk nú eftir áramótin. Hún kennir líka íslensku í 8. bekk. Steinunni Maríu bjóðum við velkomna til starfa og þökkum um leið Halldóru Jónsdóttur, sem leysti Öldu Leif af fram að áramótum, fyrir vel unnin störf og ánægjulegt samstarf.

Lok miðannar eru um miðjan febrúar og þá fer fram námsmat eins og fram kemur á skóladagatali.

Ýmsir fastir liðir eru svo á dagskránni og má nefna Skólabúðir á Laugum sem 8. bekkur fer í, skíðaferð 7. bekkjar, Árshátíð og Upplestrarkeppni. Af þessum liðum er einungis Laugaferðin tímasett en það er vikan 16. - 20. febrúar. Aðrir viðburðir verða dagsettir fljótlega.

10. bekkur fer í heimsókn á Skólaþing þriðjudaginn 20. janúar og þá heimsækja þau líka Þjóðmenningarhúsið og skoða m.a. Surtseyjarsýninguna. Þessar heimsóknir eru hluti af samfélagsfræðinámi 10. bekkinga.

 

Gleðilegt ár

2. janúar 2009

Gleðilegt ár 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Um leið og við óskum nemendum og fjölskyldum þeirra gleðilegs nýs árs viljum við minna á að fyrsti kennsludagur ársins verður þriðjudaginn 6. janúar. Þá hefst kennsla samkvæmt stundaskrá.

Starfsfólk skólans mætir til starfa mánudaginn 5. desember til undirbúnings og þá er skrifstofa skólans opin frá kl. 8.