Grunnskólinn í Stykkishólmi

 

Fréttir í maí 2006

 

Sauðburður

31. maí 2006

Jón Páll kynnti sauðburðinn fyrir bekkjarfélögum sínum í 2. bekk nú í vor. Skoðið myndirnar á myndasafninu.

Myndir frá vordögum 1. bekkjar

30. maí 2006

1. bekkur fór í dag í skemmtilega ferð í Sauraskóg. Búið er að setja albúm frá ferðinni og öðrum verkefnum 1. bekkjar á myndasíðuna.

 

Skólalok

29. maí 2006

Nú er prófum og öðru námsmati lokið hjá öllum nemendum nema 9. bekk sem er í prófum 29. - 31. maí.

Aðrir bekkir eru í vettvangsferðum og útivist þessa daga og síðasti dagur nemenda verður miðvikudaginn 31. maí. Þá verður aðalverkefnið vorhreingerningin í bæjarlandinu eins og var í fyrra. Krakkarnir fá þá úthlutað hverfum sem þeir fara um og safna saman rusli. Skóladeginum lýkur svo með grillveislu um hádegið við skólann á Borgarbraut.

Körfuboltamaraþon 9. bekkjar

11. maí 2006

Fjáröflun 9. bekkjar vegna Danmerkurferðarinnar hefur gengið vel. Um síðustu helgi léku krakkarnir körfubolta í sólarhring og söfnuðu áheitum.

Vilja þeir færa öllum sem aðstoðuðu við maraþonið bestu þakkir og á myndasafninu má sjá myndir frá maraþoninu.

Sparkvöllurinn

11. maí 2006

Síðasta föstudag var sparkvöllurinn við Íþróttamiðstöðina tekinn formlega í notkun.

Þótt börn og fullorðnir hafi notað völlinn í allan vetur þótti við hæfi að hafa formlega opnunarathöfn þegar Eyjólfur Sverrisson, umsjónarmaður verkefnisins, gat komið til okkar. Í myndasafninu eru nú allmargar myndir frá athöfninni.

Nýjar myndir

8. maí 2006

Í síðasta mánuðu fór 8. bekkur að Laugum í Dalasýslu og var þar í viku. Myndir frá Laugadvölinni eru komnar í albúm á myndasafninu (sjá tengil hér til hliðar).

Samræmd próf

8. maí 2006

Nemendur 10. bekkjar hafa síðan á miðvikudag í síðustu viku verið í samræmdum prófum. Prófað er í 6 greinum en nemendur geta valið hvaða próf þeir taka.

Í dag er próf í samfélagsfræði, á morgun er svo náttúrufræði og próflotunni lýkur með stærðfræðiprófinu miðvikudaginn 10. maí.

Að loknum prófum fara nemendur í ferðalag sem þeir hafa skipulagt í samráði við umsjónarkennara og foreldrafélagið og koma aftur heim föstudaginn 12. maí. Hjá nemendum 10. bekkjar verður svo fremur óhefðbundið skólastarf til 24. maí. Þeir fara á námskeið í skyndihjálp og vinna að stóru sameiginlegu lokaverkefni.