Skólaslit
30. maí 2008
Skólaslit verða í Stykkishólmskirkju kl. 18 í dag. 20 nemendur útskrifast úr 10. bekk í ár og fá þeir prófskírteini sín afhent við athöfnina. Nemendur annarra bekkja hitta umsjónarkennara sína eftir skólaslitin og fá sín vitnisburðarblöð hjá þeim.

Síðustu daga hafa ýmsir bekkir verið í útivist og ferðalögum og eitthvað af myndum hefur verið sett á Myndasafnið úr þeim ferðum, fleiri albúm bætast svo við síðar. Ferð 1. og 2. bekkjar um Berserkjagötuna er hér og svo má skoða myndir úr ferð 10. bekkjar í Skagafjörðinn hér.
Starfsdeild
20. maí 2008
Í vetur var starfrækt svokölluð Starfsdeild sem nokkrir nemendur í 9. og 10. fengu að taka þátt í að móta með Sigrúnu Svavarsdóttur kennara. Þetta var tilraunaverkefni sem þótti gefa góða raun og unnu krakkarnir að ýmsum spennandi verkefnum, m.a. gerðu þau gangfæran gamlan bíl - og bíða nú bara eftir bílprófinu!
Á myndasíðunni er albúm með myndum úr Starfsdeildinni.
Skólalokin
20. maí 2008
Samkvæmt skóladagatalinu var ráðgert að skólaslitin yrðu kl. 18 fimmtudaginn 29. maí. Það hefur breyst og ný dagsetning er föstudagurinn 30. maí kl. 18.00 í Stykkishólmskirkju.
Háskóli unga fólksins
13. maí 2008
Um miðjan júní tekur Háskóli Íslands á sig ferskan blæ þegar kennsla hefst í Háskóla unga fólksins. Nemendur verða börn og unglingar fædd 1992-96. Allir sem fæddir eru á þessu árabili geta skráð sig í skólann. Skólahaldið mun standa dagana 9. til 13. júní og í boði verða mörg stutt en hnitmiðuð námskeið úr ýmsum deildum og skorum Háskóla Íslands.
Sjá nánari upplýsingar með því að smella á myndina hér að ofan.
Gert er ráð fyrir um 250 nemendum í skólanum og er þeim skipt í tvo hópa; f: 1992-93 og 1994-96. Hver nemandi velur sex námskeið og einn þemadag og setur þannig saman sína eigin stundatöflu. Á síðasta degi Háskóla unga fólksins er haldin brautskráningarhátíð.
Konungleg heimsókn
7. maí 2008
Það var hátíðleg og ánæægjuleg stund hjá okkur í morgun þegar forsetahjónin og dönsku krónprinshjónin komu í heimsókn til okkar. Hér eru nokkrar myndir frá heimsókninni en fleiri myndir má sjá MYNDASAFNINU:



Myndir frá árshátíðunum
6. maí 2008
Á Myndasafnið eru nú komin albúm með myndum frá árshátíðunum sem voru haldnar í apríl.
Heimsókn forseta Íslands og dönsku krónprinshjónanna
5. maí 2008
Á miðvikudaginn kemur verður mikið um dýrðir hjá okkur. Þann dag kl. 11 renna í hlaðið hér á Borgarbrautinni forseti Íslands og frú ásamt dönsku krónprinshjónunum. Friðrik og Mary.

Allir bæjarbúar eru boðnir velkomnir í skólann til þess að hitta hina tignu gesti og hér verður stutt móttökuathöfn fyrir gestina af hálfu bæjarstjórnar og nemenda fyrir hönd bæjarbúa.
Dagskráin er þannig að meðan gestirnir ganga hér í hlað þá leikur Lúðrasveitin fyrir utan skólann. Gunnar Svanlaugsson skólastjóri tekur svo á móti þeim og sýnir þeim skólann og síðan er gengið upp á efri hæð þar sem verður búið að opna á milli 5. og 6. bekkjar stofanna og þar verða stutt ávörp og tónlistaratriði. Erla bæjarstjóri og Gretar Pálsson forseti bæjarstjórnar bjóða gestina velkomna, nemendur úr tónlistarskólanum leika á píanó og tveir nemendur munu ávarpa gestina á dönsku.