Skólaslit
2. júní 2009
Skólaslit verða kl. 18 þann 3. júní í Stykkishólmskirkju.
19 nemendur útskrifast frá skólanum úr 10. bekk og 21 nemendi byrjar svo í haust í 1. bekk.
Skólasýning opinn skóli
20. maí 2009
Verður á morgun 21. maí, uppstigningardag, í húsnæði skólans við Borgarbraut og Skólastíg frá klukkan 11:00 14:00.
Foreldrafélag og foreldrar nemenda 9. bekkjar sjá um veitingasölu.
Nemendur og starfsfólk hvetja alla til að mæta og sjá afrakstur skólastarfsins í vetur.
Skyndihjálparnámskeið
14. maí 2009

10. bekkur er í dag að ljúka 16 klukkustunda skyndihjálparnámskeiði sem þeir nafnarnir Einar Strand og Einar Hafberg hafa stýrt. Á morgun hefjast svo prófin hjá 10. bekkingum.

Prófdagar og fleira
13. maí 2009
Dagskrá nemenda næstu vikur, þ.e. prófdagar og fleira, hafa umsjónarkennarar verið að setja á Mentor eða senda upplýsingar heim undanfarna daga. Hér má nálgast pdf.skjal sem sýnir dagskrána í stórum dráttum hjá 5. - 10. bekk, þar á meðal prófdagana.
Uppstigningardagur 21. maí er frídagur í skólanum eins og venja er en þann dag ætlum við samt að vera með opið hús og efna til Skólasýningar eins og gert hefur verið annað hvert ár. Þetta verður nánar auglýst í næstu viku. Þeir nemendur sem hafa tekið muni með sér heim en vilja setja þá á sýninguna hafi samband við listgreinakennarana sem sjá um uppsetningu sýningarinnar í samvinnu við nemendur.
Menningarferð 5. bekkjar
5. maí 2009
5. bekkur fór í hina árlegu Menningarferð til höfuðborgarinnar dagana 28. - 29. apríl. Með þeim voru nokkrir foreldrar auk kennara og bílstjóra. Krakkarnir heimsóttu Þjóðleikhúsið, fóru í keilu og Fjölskyldu- og húsdýragarðinn, Skautahöllina og gerðu margt fleira skemmtilegt. Gist var í Rimaskóla hjá Helga Árnasyni sem tók vel á móti Hólmurunum eins og hann er vanur og erum við þakklát fyrir það.
Myndir eru komnar inn á Myndasafnið en hér eru tvö sýnishorn:

Vordagskráin
4. maí 2009
Nú er mánuður eftir af skólaárinu og dagskráin hjá nemendum og kennurum fyrir þessar síðustu vikur hefur verið skipulögð að mestu leyti.
Skólaslit verða 3. júní eins og gert var ráð fyrir í haust og síðasti skóladagur hjá nemendum allra bekkja er 29. maí. Prófdagar hafa hins vegar breyst hjá elstu bekkjum vegna breytinga sem urðu á samræmdum prófum hjá 10. bekk. Síðasti hefðbundinn kennsludagur hjá 10. bekk verður 11. maí. Skyndihjálparnámskeið og prófdagar taka svo við og að þeim loknum skólaferðalag.
Á uppstigningardag 21. maí, sem er ekki hefðbundinn skóladagur, verður skólasýning og "opinn skóli". Prófdagar hefjast 22. maí hjá 5. - 9. bekk og verða 2 - 5 dagar teknir undir prófin. Umsjónarkennarar gera nánar grein fyrir dagskránni hver hjá sínum bekk.
