Fréttir í mars 2007
ÁRSHÁTÍÐ
27. mars 2007
Árshátíð unglingdeilda (7. - 10.) verður haldin á morgun, miðvikudag 28. mars. Miðasala hefst á morgun í frímínútunum og kostar miðinn 1800,- kr.
Mæting er kl. 19 á Hótel Stykkishólm þar sem verður framborinn veislumatur og fínirí að hætti hússins. Þar verða líka skemmtiatriði og verðlaunaafhendingar. Eftir það allt saman verður haldið með rútu í Xið og dansað fram á nótt við undirleik hins ástsæla Stuðbands.
Árshátíð 1. - 6. bekkjar verður svo á fimmtudaginn í félagsheimilinu.
Kveðjur frá Dalvík
27. mars 2007
Krakkarnir sem eru í skíðaferð á Dalvík senda bestu kveðjur heim. Allt hefur gengið vel og þeir vilja benda á að hægt er að fylgjast með skíðasvæðinu í vefmyndavél.
Góður árangur
22. mars 2007
Á þessari mynd eru nemendur 7. bekkjar sem sigruðu í Stóru Upplestrarkeppninni á Snæfellsnesi í gærkvöldi. Þetta eru frá vinstri: Þórður Helgason, úr dómnefndinni, Snjólfur Björnsson sem varð í 1. sæti, Símon Karl Sigurðarson sem varð í 3. sæti og Elín Sóley Reynisdóttir sem varð í 2. sæti.
Þetta var sannarlega glæsilegur árangur hjá krökkunum og óska stoltir skólafélagar þeirra þeim til hamingju með sigurinn.
Upplestur
15. mars 2007
Í gærkvöldi var Upplestrarkeppni 7. bekkjar haldin í kirkjunni. Níu nemendur lásu og aðrir bekkjarfélagar þeirra léku á hljóðfæri.

Þrír lesarar voru valdir af dómnefnd til þess að taka þátt í Stóru Upplestrarkeppninni á Snæfellsnesi sem fer fram í Grundarfirði 21. mars nk. Þeir sem voru valdir sem fulltrúar skólans voru Elín Sóley Reynisdóttir, Símon Karl Sigurðarson og Snjólfur Björnsson. Það var vandasamt fyrir dómnefndina að velja því krakkarnir voru mjög jafnir og stóðu sig allir með stakri prýði.
Þingmenn framtíðar
13. mars 2007
Í síðustu viku fóru þeir nemendur í 10. bekk sem eru í raungreinavali í námsferð til Reykjavíkur.
Þeir fóru í stjörnuskoðun, heimsókn í Rafheimar og auðvitað var kíkt á umræður í Alþingisvefurinn enda eru hér framtíðarþingmenn þjóðarinnar á ferð eins og sést á þessari mynda af þeim og Jóni Sigurðssyni og þjóðfundarmönnum.
Fleiri myndir frá heimsóknum þeirra er að finna á Myndasafninu.

Upplestrarkeppnin
13. mars 2007
Undankeppni fyrir Stóru Upplestrarkeppnina á Snæfellsnesi fer fram hjá okkur á morgun. Keppnin hefst kl. 20.00 í kirkjunni og það eru 9 nemendur úr 7. bekk sem lesa.
Milli atriða leika nemendur úr Tónlistarskólanum á hljóðfæri og boðið verður upp á molakaffi og gosdrykki í hléi meðan dómnefndin ræður ráðum sínum. Þetta kvöld verða valdir þrír nemendur til þess að taka þátt í lokakeppninni sem fer fram í Grundarfirði miðvikudaginn 21. mars.
Myndir
5. mars 2007
8. bekkir Grunnskólans í Stykkishólmi og Grunnskóla Grundarfjarðar áttu frábæra viku í skólabúðunum á Laugum í Sælingsdal í febrúar. Loksins eru komnar inn myndir frá dvölinni og þær má skoða ef farið er á Myndasafnið.