Grunnskólinn í Stykkishólmi

 

Skólahreysti

27. mars 2008

Í dag fara nokkrir fulltrúar úr elstu bekkjunum á Akranes og taka þátt í Vesturlandskeppninni í Skólahreysti. Keppnin fer fram í hverjum landsfjórðungi og komast sigurvegararnir áfram í úrslitakeppni. Þeir nemendur sem hafa áhuga á að fara með sem klapplið komast með í rútunni sem fer frá skólanum kl. 2 í dag. Fargjaldið með rútunni er 1000 krónur.

Páskaleyfi

13. mars 2008

Sýningar á Tehúsinu hafa gengið vel þessa viku þrátt fyrir að veikindi hafi herjað á nemendur og starfsfólk. Frumsýning var á mánudagskvöld og sýnt er á hverju kvöldi út vikuna.

Í dag, fimmtudag, verður sýningin kl. 4 og er von á nemendum úr Ólafsvík og einnig hafa lionsklúbbarnir í Stykkishólmi boðið félögum í Aftanskini á þessa sýningu. Lokasýningin verður svo á föstudagskvöld.

Föstudagur er síðasti skóladagur fyrir páska og kennsla hefst að nýju þriðjudaginn 25. mars.

 

 

 

 

Tehúsið

7. mars 2008

Æfingar á söngleiknum Tehúsinu eru nú á lokastigi. Í dag verður sýning fyrir grunnskólanemendur kl. 10 en frumsýning verður svo á mánudagskvöld kl 20.00.

Athygli er vakin á að sýningar verða einungis vikuna 10. - 14. mars. Lokasýning verður föstudaginn 14. mars.

 

Skák

7. mars 2008

Í gær kom Helgi Ólafsson skákmeistari í heimsókn í yngri deildirnar. Helgi náði því miður ekki að hitta alla bekki sem stefnt hafði verið að en krakkarnir í 1. - 4. bekk hafa undanfarna viku æft skák og sýnt mikinn áhuga. Eftir hádegið var efnt til lítils skákmóts í Vatnasafninu sem Helgi stjórnaði. Við viljum þakka Skáksambandinu og Helga fyrir aðstoðina og vonandi verður heimsókn hans og æfingar síðustu viku til þess að efla skáklífið.