Páskaleyfi
27. mars 2009
Síðasti kennsludagur fyrir páskaleyfi er föstudagurinn 3. apríl. Kennsla hefst svo að nýju þriðjudaginn 14. apríl.
Myndir frá árshátíðinni
20. mars 2009
Búið er að setja myndir frá skemmtiatriðum á árshátíð 1. - 6. bekkjar í albúm sem hægt er að skoða á Myndasafninu.
Stóra upplestrarkeppnin
19. mars 2009
Í síðustu viku var úrslitakvöld Stóru upplestrarkeppninnar á Snæfellsnesi haldið í Ólafsvíkurkirkju. Fulltrúar okkar voru þau Andrea, Bryndís og Friðrik og stóðu þau sig með sóma þótt ekki yrðu þau í efstu sætunum. Sigurvegarar í ár voru þær Sigrún Pálsdóttir úr Grundarfirði sem varð í 1. sæti, varð Thelma Kristinsdóttir, Ólafsvík í öðru sæti og Rakel Sunna Hjartardóttir úr Ólafsvík sem varð í þriðja sæti.
Hér eru nokkrar myndir frá kvöldinu:



Árshátíð
17. mars 2009
Nú í morgun þurfti að bregðast við þar sem tímasetningar vegna árshátíðar voru komnar í uppnám vegna oddaleiks Snæfells og Stjörnunnar sem verður nk. fimmtudag kl. 19.15.
Allstór hópur eldri nemenda er ráðinn sem starfsfólk á öllum heimaleikjum Snæfells auk þess sem enn fleiri vilja ekki missa af þessum leikjum sem áhorfendur. Það var því úr vöndu að ráða og örugglega ekki hægt að koma til móts við ítrustu óskir allra þegar fyrirfram ákveðnir dagskrárliðir fara á hreyfingu. Að vandlega athuguðu máli varð þó niðurstaðan þessi:
Árshátíð yngri deilda verður á morgun eins og fyrirhugað var. Hún hefst kl. 18.00 á sýningu í hótelinu og síðan er dansleikur fyrir krakkana til kl. 21 í Tónlistarsalnum í gamla skóla.
Eldri krakkarnir (7. - 10. bekkur) halda sína árshátíð líka á morgun, miðvikudag. Þeirra dagskrá hefst kl. 20 með þríréttaðri máltíð á hótelinu og sér hver bekkur um skemmtiatriði á milli rétta. Eftir matinn taka þau síðan við ballinu af yngri krökkunum og dansa fram yfir miðnættið.
Myndir frá Árnamessu
16. mars 2009
Árnamessan og skákmótið í tengslum við hana tókst vel. Allir dagskrárliðirnir voru haldnir hér í skólanum auk þess sem meistaraflokkslið Snæfellskvenna sá um matinn fyrir þátttakendur.
Um 70 manns sóttu málþingið þar sem voru framsöguerindi um forvarnir og lauk því með pallborðsumræðum.
Skákmótið var fjölmennt þar sem 90 grunnskólanemendur tefldu, þar af voru 20 nemendur úr Stykkishólmi sem allir voru að stíga sín fyrstu spor á alvöru skákmóti og það með Íslands-, Evrópu- og heimsmeisturum í skák!






Árnamessa
13. mars 2009
Laugardaginn 14. mars stendur Lýðheilsustöð fyrir málþingi um stöðu áfengismála á Íslandi. Málþingið er helgað Árna Helgasyni sem hefði orðið 95 ára þennan dag.
Samhliða málþinginu verður haldið skákmót grunnskólabarna þar sem öllum er opin þátttaka og þegar hafa margir af efnilegustu skákkrökkum landsins skráð sig í mótið. Sjá nánar á Skák.is
Í tilefni af skákmótinu kom Þór Örn Jónsson í heimsókn til okkar og leiðbeindi nemendum í skáklistinni og er vonandi að mótið verði okkur hvatning og vísir að öflugu skákstarfi hér.

Upplestrarkeppnin í 7. bekk
5. mars 2009

Í gærkvöldi var upplestrarkeppnin í 7. bekk og þá voru valdir þeir þrír keppendur sem í næstu viku munu keppa fyrir hönd bekkjarins í Stóru upplestrrarkeppninni á Snæfellsnesi.
Fulltrúar bekkjarins verða þau Andrea Kristín Pálsdóttir, Bryndís Inga Þorsteinsdóttir og Friðrik Örn Sigþórsson