Fréttir í mars og apríl 2006
Gleðilegt sumar
24. apríl 2006
Um leið og við óskum nemendum og fjölskyldum þeirra gleðilegs sumars þá bjóðum við þá velkomna til starfa á ný eftir páskaleyfi.
Vikan fyrir páska var mikil ferðavika hjá nemendum og fóru 7. bekkingar í skíðaferð til Akureyrar eins og sjá má á myndum sem búið er að setja á vefinn.
8. bekkur var viku í Skólabúðum að Laugum í Dalasýslu og 5. bekkur fór í velheppnaða menningarferð til höfuðborgarinnar.
Í morgun heimsóttu flestir bekkir Norska húsið og skoðuðu sýninguna Auður Austurlands sem var sett upp á sumardaginn fyrsta. Framundan er svo undirbúningur 10. bekkinga fyrir samræms próf sem hefjast þriðjudaginn 2. maí.
Páskaleyfi
7. apríl 2006
Í dag er síðasti kennsludagur fyrir páska. Kennsla hefst aftur samkvæmt stundaskrá mánudaginn 24. apríl.
Starfsfólk skólans óskar nemendum og fjölskyldum þeirra gleðilegra páska.
Fermingar
6. apríl 2006
Í vetur, eins og oft áður, hafa nemendur í 8. bekk búið til gestabækur í saumastofunni. Kápan er unnin úr þæfðri ull eins og sést á sýnishornunum á myndinni:

Þessar gestabækur hafa þeir svo notað í tengslum við ferminguna. Flestar bækurnar eru tilbúnar, og margir hafa tekið sína bók heim, en örfáum er ólokið vegna veikinda nemenda og Laugaferðarinnar. Þeir foreldrar og nemendur sem vilja fá bækurnar heim fyrir skólalok geta haft sambandi við Unni Breiðfjörð.
Fámennt í skólanum...
4. apríl 2006
Það hefur verið fremur fámennt fyrstu tvo daga vikunnar. Það á sér þær skýringar að 8. bekkur er alla þessa viku í ungmennabúðum á Laugum í Dalasýslu og 7. bekkur fór í skíðaferð til Akureyrar á sunnudag. Skíðafólkið kemur aftur á miðvikudag.
Allmargir nemendur hafa verið fjarverandi vegna veikinda það sem af er vikunni og einnig nokkrir kennarar. Við vonum að heilsan fari nú að batna með vorinu og allir komi endurnærðir úr páskaleyfinu sem er óvenjulangt í ár.
Krakkarnir sem eru á Laugum og í Hlíðarfjalli senda sínar bestu kveðjur, þar hefur allt gengið vel og áfallalaust fyrir sig.
Glæsileg árshátíð eldri deilda
31. mars 2006
Árshátíð eldri bekkjanna var í gærkvöldi og hófst með glæsilegum hátíðarkvöldverði á Hótel Stykkishólmi. Krakkarnir mættu í sínu fínasta pússi og mátti greina undrunar- og sælusvip á andlitum kennaranna þegar þeir sáu nemendurna ganga í salinn eins og þeir væru við afhendingu Óskarsverðlauna. Hver bekkur bauð upp á vandað skemmtiatriði og sást þar enn og aftur hvað tónlistarnámið er mikilvægt og gefandi fyrir samfélagið.
"Gamlir" nemendur sáu um veislustjórn og þjónustu og komu líka með skemmtiatriði.

Eftir kvöldverðinn var svo haldið á ball með rútu í Félagsmiðstöðina X-ið þar sem Stuðbandalagið - skólahljómsveit úr FSN , skipuð gömlum nemendum - hélt uppi fjörinu.
Myndir af herlegheitunum hafa verið settar á myndasíðuna. Smellið á hnappinn Myndir hér til vinstri og opnast síða með tenglum í albúmin. 

Myndir frá árshátíðinni
30. mars 2006
Í gærkvöldi sýndu 1. - 6. bekkur árshátíðardagskrá sína. Aðsókn var góð eins og ævinlega og var ekki annað séð en nemendur og gestir skemmtu sér hið besta.
Búningar voru glæsilegir og förðun í atvinnumannaklassa enda fátt sem gleður unga leikara meira en litskrúðugar hárkollur og smink.
Hver bekkur sá um sín atriði undir stjórn síns umsjónarkennara og þar kenndi margra grasa. Sylvía Nótt mætti - eins og við var að búast - en það gerði líka Lína langsokkur, jólasveinninn, dýr úr Afríku, gamall afi og unglingur með vandamál að ógleymdum sjónvarpsstjörnum og öðru hefðarfólki.
Hér eru tvær myndir frá kvöldinu en fleiri myndir eru í þessu albúmi. Því miður varð myndavél ljósmyndarans rafmagnslaus áður en kom að atriði 6. bekkjar svo við viljum biðja þá sem eiga góðar myndir af þeirra atriðum að senda okkur mynd sem við gætum sett í albúmið.


Árshátíð
27. mars 2006
Árshátiðin verður dagana 29. mars og 30. mars. Hún er tvískipt eins og áður. Yngstu bekkirnir, 1. - 6. bekkur, verða með sýningu í Félagsheimilinu kl. 19.30 miðvikudaginn 29. mars. Foreldrar og aðrir gestir eru boðnir velkomnir á sýninguna. Miðar fyrir foreldra og gesti eru seldir við innganginn og kosta kr. 500,- en miðaverð fyrir grunnskólanemendur er kr. 300,- og kaupa þeir miða í skólanum á þriðjudag.
Eldri krakkarnir ætla að breyta til og nú verður árshátíð þeirra á Hótelinu 30. mars. Þar verður fínn matur og stutt skemmtidagskrá sem krakkarnir ætla að njóta með umsjónarkennurum sínum og svo verður dansað í X-inu á eftir. Miðaverð: 1500,- fyrir hátíðarmálsverð og ball.
Skarphéðinn
27. mars 2006
Undankeppni spurningakeppninnar Skarphéðinn lauk í síðustu viku. Leikar voru æsispennandi en 10. bekkur hreppti fyrsta sætið eftir að tvær umferðir höfðu verið leiknar.
9. bekkur kom á hæla þeirra en bekkirnir hlutu jafn marga vinninga og þurfti að grafa upp reglur keppninnar til að fá fram rétt úrslit. Í þriðja sæti var 8. bekkur en þau stóðu sig með mikilli prýði og m.a. endaði leikur þeirra við 9. bekk í tvöfaldri framlengingu.
Úrslitakvöldið mun fara fram eftir páska en nákvæm tímasetning hefur ekki verið ákveðin. Á úrslitakvöldinu fara fram tveir leikir, undanúrslitaleikur á milli 8. bekkjar og 9. bekkjar, og sjálfur úrslitaleikurinn sem verður á milli 10. bekkjar og sigurvegaranna úr undanúrslitaleiknum.
Upplestrarkeppnin
16. mars 2006

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar fór fram í Ólafsvík í gærkvöldi. Hér er mynd af þeim sem urðu í efstu sætunum. Það voru Berglind Gunnarsdóttir sem varð í fyrsta sæti, Hugrún Ýr Sigurðardóttir í örðu sæti og Jónína Riedel í þriðja sæti. Við óskum þeim öllum til hamingju og þarf varla að geta þess að við vorum ákaflega stolt af frammistöðu okkar nemenda.
Í gær var líka fyrsta umferð í spurningakeppninni Skarphéðinn og er minnt á að önnur umferð þessarar skemmtilegu keppni verður í næstu viku. Fylgist því vel með tilkynningum um það.

Skarphéðinn og upplestrarkeppnin
15. mars 2006
Hin árlega spurningakeppni Skarphéðinn er að hefja göngu sína. Lið frá 8. bekk, 9. bekk og 10. bekk etja kappi en tvær umferðir verða spilaðar á tveimur kvöldum.
Fyrri umferðin er miðvikudaginn 15. mars kl. 20:00 í X-inu en seinni umferðin verður í vikunni á eftir. Úrslitakvöldið verður auglýst síðar. Foreldrar og nemendur eru hvattir til að mæta og sjá spennandi og skemmtilega keppni. Aðgangaseyrir er 100 kr.
Í kvöld er svo líka Lokahátíð upplestrarkeppninnar hér á Snæfellsnesi. Hún verður í Ólafsvíkurkirkju og hefst kl. 20.00. Þrír fulltrúar fara úr 7. bekk. Berglind Gunnarsdóttir, Jónína Riedel og Sylvía Ösp Símonardóttir.
Skólafélagarnir og foreldrar geta komist með í rútunni eftir því sem plássið leyfir. Rútan fer héðan kl. 19.00.
Til hamingju strákar
13. mars 2006
Hér er mynd af strákunum í 9. flokki Snæfells. Þeir náðu þeim frábæra árangri að leika til úrslita í bikarkeppni KKÍ sl. laugardag. Spiluðu þeir við sterkt lið Fjölnis og þótt þeir hafi beðið lægri hlut í þeirri viðureign er samt ástæða til að óska þeim til hamingju með árangurinn. Þetta er í annað sinn sem þessir strákar leika til úrslita. Sannkallaðir framtíðarmenn. Sjá nánar á Heimaíðu Snæfells.
Skák og mát
6. mars 2006
Það hefur dregist að setja hér inn myndirnar frá skákhátíð 3. bekkjar sem var 22. febrúar. En nú erum við búin að setja upp albúm með myndum.

Það var hann Máni sem kom frá Skákfélaginu Hróknum og færði nemendum 3. bekkjar að gjöf bókina Skák og mát eftir Anatoly Karpov fyrrverandi heimsmeistara. Síðan var efnt til fjölteflis í 3. bekk og náðu þrír að knýja fram jafntefli enda gátu þeir kíkt í bókina og lært að vinna úr flóknum stöðum. Skákdagurinn var einstaklega vel heppnaður þótt nokkrir nemendur hafi misst af honum vegna veikinda. Smellið hér til þess að skoða myndirnar.
Tónlist fyrir alla
6. mars 2006
Á morgun, þriðjudaginn 7. mars, verða tónleikar fyrir grunnskólanemendur í kirkjunni. Þessir tónleikar eru þáttur í verkefninu Tónlist fyrir alla sem við höfum tekið þátt í frá upphafi.
Í reglum um verkefnið segir m.a.: Hlutverk Tónlistar fyrir alla er að kynna nemendum í íslenskum skólum, einkum á grunnskólaaldri, ólíkar tegundir tónlistar í lifandi flutningi listamanna með það að markmiði að efla þekkingu þeirra og skilning á tónlist.
Að þessu sinni er það Hljómskálakvintettinn sem tekur á móti nemendum.
Skipulagið verður þannig að 1. - 5. bekkur eru frá kl. 11.20 til 12.00 og 6. - 10. bekkur frá kl. 12.20 til 13.00