Grunnskólinn í Stykkishólmi

 

Jólaföndur

28. nóvember 2007

Ákveðið hefur verið að jólaföndur foreldrafélagsins verði haldið, mánudaginn 3. og þriðjudaginn 4. desember. Á mánudeginum föndra 1. til 4. bekkur í sínum stofum klukkan 18:30. Á þriðjudeginum föndra svo 5. til 10. bekkur í sínum stofum klukkan 18:30.

Forvarnadagurinn 2007

20. nóvember 2007

Dagur íslenskrar tungu

15. nóvember 2007

Það hefur ekki farið fram hjá neinum að Dagur íslenskrar tungu í ár er fyrirferðarmeiri í fjölmiðlum en oft áður. Ástæðan er að nú eru 200 ár frá fæðingu Jónasar Hallgrímssonar.

Hjá 5. 10. bekk verður dagskrá í 2. kennslustund á morgun (kl. 8.45 - 9.30). Bekkirnir koma saman og það verður lesið og sungið. Örugglega eithvað um og eftir Jónas en líka aðra höfunda, s.s. nemendur sjálfa. Foreldrar eru velkomnir í heimsókn til að eiga notalega morgunstund í skólanum.

Frá foreldraráði

13. nóvember 2007

Mánudaginn 12. nóvember fundaði foreldraráð grunnskólans með skólastjóra. Foreldraráðið skipa þau Anna Melsteð, Steinunn Helgadóttir og Sævar Harðarson.
Á fundinum fór skólastjóri yfir starfið í skólanum, s.s. nemendafjölda, starfsmenn, húsnæðismál, ýmis sérverkefni og svo mætti lengi telja. Bæði var farið yfir nýhafið skólaár og það sem ljóst liggur fyrir um næsta skólaár.
Mikið er framundan í skólanum á næstunni og er ætlunin að foreldraráðið verði vel inn í því sem verið er að vinna hverju sinni. Því hvetum við foreldra til að hafa samband við þá sem skipa foreldraráðið ef einhverjar spurningar og/eða tillögur vakna um skólastarfið.

Jólaföndur foreldrafélagsins

12. nóvember 2007

Ákveðið hefur verið að jólaföndur foreldrafélagsins verði haldið, mánudaginn 3. og þriðjudaginn 4. desember. Á mánudeginum föndra 1. til 4. bekkur í sínum stofum klukkan 18:30. Á þriðjudeginum föndra svo 5. til 10. bekkur í sínum stofum klukkan 18:30.
Föndrið verður auglýst betur þegar nær dregur.

Fleiri skókassar

7. nóvember 2007

Það vantaði myndir af 5. bekk þegar sagt frá verkefniu Jól í skókassa. Það náttúrlega gengur ekki að gleyma þeim enda lögðu þau mikla vinnu í verkefnið og unnu af áhuga. Hér er bætt úr því og einnig er hér mynd af prestinum frá Úkraínu sem kom hingað til lands til þess að veita viðtöku jólagjöfunum. Hann kom hingað í Stykkishólm og var myndin tekið við það tækifæri.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Jól í skókassa

1. nóvember 2007

Krakkarnir í 5. og 6. bekk hafa undanfarið verið að vinna að verkefninu Jól í skókassa og í dag afhentu þau gjafirnar til umsjónarmanna verkefnisins hér í Stykkishólmi. Hér eru myndir af því þegar nokkrir 6. bekkingar fóru með kassana til Ásdísar á Tangagötunni.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Umhverfisráð

1. nóvember 2007

Haldinn var fyrsti fundur í Umhverfisráði yngri deilda við Skólastíg miðvikudaginn 31. okt. Mættir voru fulltrúar nemenda í 1. – 4. bekk, foreldrar, kennarar, starfsfólk og skólastjórinn. Síðasta vor fengu þessir bekkir Grćnfánann eftir að hafa flokkað og minnkað sorp í fyrravetur. Til þess að halda fánanum þurfum við að halda áfram að flokka og taka fyrir nýtt verkefni. Það var ákveðið á fundinum að vinna að því í vetur að minnka orkunotkun í Gamla skólanum. Bubbi bangsi mun dvelja til skiptis í bekkjunum og fylgast með orkunotkuninni.

Það hefur gengið frekar brösulega að halda fánanum á lofti í haustrokinu. Hann slitnaði niður nýlega og var orðinn tættur. Hann hefur nú verið lagfærður og var dreginn aftur að húni í lok fundarins. Við munum reyna að taka hann niður þegar von er á miklum vindi.

(Mynd: Stykkishólmspósturinn)