Grunnskólinn í Stykkishólmi

 

Fréttir í nóvember og desember 2006

Gleðileg jól

22. desember 2006

Helgileikur

Starfsfólk skólans sendir öllum nemendum og fjölskyldum þeirra bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár.

Helgileikur og litlu jól

14. desember 2006

Kennt verður samkvæmt stundaskrá mánudaginn 18. desember til kl: 12:30.

Litlu jólin verða þriðjudaginn 19. desember sem hér segir:
1. - 5. bekkur kl. 10 - 12
6 - 10. bekkur kl. 11 - 12

Kennsla hefst svo aftur 3. janúar eftir stundaskrá.

Hinn árlegi helgileikur yngstu nemenda var í morgun í kirkjunni. Fleiri myndir frá kirkjuferðinni má sjá á myndasafninu.

helgileikur

Jólasnjór

14. desember 2006

Það er alltaf mikið fjör á skólalóðinni þegar nýfallinn snjór verður "aðalleiktækið".

Sumir drífa sig í að búa til karla og kerlingar úr snjónum, eins og krakkarnir á þessari mynd (fleiri myndir í myndasafninu). Aðrir grafa göng og gera snjóhús og enn aðrir einbeita sér að snjókasti og stympingum í snjónum (því miður engin mynd af því).

Vonandi að snjói meira fyrir jólin....
Snjór

Síðustu sýningar á FRELSI

12. desember 2006

Sýningar á söngleiknum Frelsi hafa gengið vel og verið vel sóttar. Þótt ekki hafi birst hefðbundin leiklistargagnrýni í fjölmiðlum þá má fullyrða að sýningin hefur fengið ákaflega góða dóma hjá leikhúsgestum.

Nú eru eftir aðeins 3 sýningar og ástæða til að hvetja fólk til þess að skipuleggja tíma sinn vel og missa ekki af einstæðum listviðburði!!!!

Sýning þriðjudagskvöldið 12. des. kl. 20.00
Sýning sunnudagskvöldið 17. des kl. 19.00 Ath. breyttur tími.
Lokasýning þriðjudagskvöldið 19. des. kl. 19.00 Örfá sæti laus

Ívar og Kristrún

Frumsýning á morgun

6. desember 2006

Á morgun, 7. desember, verður söngleikurinn Frelsið frumsýndur á Hótel Stykkishólmi.

Frelsi

 

 

 

 

 

Verkið er samið af Akurnesingunum Gunnari Sturlu Hervarssyni og Flosa Einarssyni og var fyrst flutt af nemendum Grundaskóla á Akranesi. Um 40 unglingar taka þátt í uppfærslunni þar af er 10 manna hljómsveit sem Martin Markvoll stjórnar. Martin útsetti líka alla tónlist fyrir hljómsveitina. Leikstjórn og umsjón er í höndum Auðar Rafnsdóttur og Lárusar Hannessonar.

Sýningatímar eru sýndir í dálkinum Á döfinni hér til hægri. Auk þessara sýninga verður sérstök sýning 19. des. fyrir nemendur af Snæfellsnesi í samvinnu við félagsmiðstöðvarnar. Sú sýning, og það sem henni fylgir, verður auglýst betur síðar.

 

Myndir frá jólaföndri og frumsýning

4. desember 2006

Á myndasafnið hafa verið settar myndir frá jólaföndri foreldrafélagsins í 1. - 5. bekk.

JólaföndurEinnig er rétt að minna á að söngleikurinn Frelsið verður frumsýndur nk. fimmtudag. Nánari upplýsingar um sýningar og fleira verða birtar hér á vefnum fljótlega.

 

 

 

 

 

Frelsi

1. desember 2006

Nú líður að því að leiklistarhópurinn frumsýni söngleikinn Frelsi. Söngleikurinn var frumfluttur í Grundaskóla á Akranesi og á sínum tíma var farin hópferð úr Hólminum á Skagann til þess að sjá verkið.

aefingUm 40 krakkar koma að þessu verkefni hjá okkur og fyrir utan leikara og tæknifólk er stærðar hljómsveit sem leikur undir í öllum lögunum. Martin Markvoll útsetti lögin fyrir hljómsveitina og stjórnar tónlistarflutningi. Leikstjórar eru Auður Rafnsdóttir og Lárus Hannesson.

Fyrstu sýningar verða í lok næstu viku og verða þær auglýstar nánar eftir helgina. Krakkarnir hafa sett inn á myndasafnið myndir frá einni æfingahelginni.

Jólaföndur

27. nóvember 2006

Jólaföndur á vegum foreldrafélaganna verður í lok þessarar viku.

kortFimmtudaginn 30. nóv. ætla nemendur og foreldrar 6. - 10. bekkja að hittast kl. 18.00 í skólanum við Borgarbraut og gera eitthvað skemmtilegt saman.

Föstudaginn 1. desember kl. 18.00 verður svo jólaföndrið hjá 1. - 5. bekk í Gamla skólanum.

 

 

Skólatónleikar

27. nóvember 2006

Björn Thoroddsen og djasstríó skipað Jóhanni Ásmundssyni á bassa og Benedikt Brynleifssyni á slagverk leika á skólatónleikum á morgun í kirkjunni.

Yngri nemendur mæta kl. 11.20 og þeir eldri kl. 12.20. Á efnisskránni eru sálmar Lúthers en Björn Thoroddsen fékk þrjár tilnefningar til íslensku tónlistarverðlaunanna fyrir þessar útsetningar.

Vetrarleyfi

8. nóvember 2006

Eins og kom fram á skóladagatali í haust verður vetrarleyfi í Grunnaskólanum í Stykkishólmi og einnig í Tónlistarskóla Stykkishólms vikuna 13. – 17. nóvember. Þessa daga verða kennarar og starfsfólk skólanna í námsferð í Minneapolis í Bandaríkjunum.


Vetrarleyfi hafa ekki verið fastur liður á dagatali Grunnskólans undanfarin ár en að þessu sinni var ákveðið að nota þrjá af fimm svokölluðum starfs- eða skipulagsdögum vetrarins í þessa ferð og taka einnig tvo daga í vetrarleyfi. Þannig nást fimm dagar sem verða notaðir í ferðina.
Kennsla hefst aftur samkvæmt stundaskrá mánudaginn 20. nóvember.

Föstudaginn 10. nóvember ljúka nemendur vikunni með því að hlýða á tónleika lúðrasveitanna í Stykkishólmskirkju.

Foreldrar yngstu nemendanna eru minntir á að nemendurnir ljúka sínum skóladegi kl. 12.30 í kirkjunni þennan föstudag.

 

Fyrirlestur og foreldrafundur

6. nóvember 2006

Á morgun, 7. nóvember, verður Stefán Karl Stefánsson leikari með fyrirlestur um einelti á netinu. Fyrirlesturinn verður sendur út frá Los Angeles til allra grunnskóla á Íslandi og skiptist þannig að fyrir hádegi er nemendum boðið á 30 mínútna spjall með Stefáni og kl. 8 um kvöldið verður svo "stærsti foreldrafundur í heimi" þegar Stefán heldur fyrirlestur í beinni útsendingu fyrir foreldra.

Fyrirlesturinn hjá okkur verður í Félagsmiðstöðinni X-inu og hefst stundvíslega kl. 20.00. Aðgangseyrir er 1000 kr. og rennur ágóðinn til Regnbogabarna. Foreldrar eru hvattir til þess að fjölmenna á þennan viðburð.

Hér að neðan er svo tilvitnun í kynningartexta sem Stefán hefur sent skólunum:

Hér er um að ræða fyrirlestur sem ætlaður er öllum þeim sem hafa áhuga á uppeldismálum.
Á fyrirlestrinum verður rætt um eineltismál út frá töluvert öðrum forsendum en oft áður.
Hér leitast ég við að draga fram upplifun mína sem leikmaður en ekki sem fræðimaður á sviði
barnauppeldis, sálfræði eða heimspeki.
Hinsvegar er það skoðun mín að hvort sem um er að ræða heimspeking, geðlækni eða jafnvel
listamann sé það skylda okkar að miðla því sem við upplifum ef við teljum það geta komið samfélaginu að einhverju gagni.
Á þessum fyrirlestri er ég einungis að deila með ykkur skoðunum mínum og velta upp hugmyndum til glöggvunar og úrræðum sem auðveld eru í framkvæmd frekar en að bjóða fram skyndilausnir.
Þar sem einelti og aðrir skyldir kvillar eru samfélagslegt verkefni er það von mín að þessi fyrirlestur eigi eftir að varpa nýju ljósi á umræðuna, og færa okkur skrefi nær samfélaginu og hvort öðru.

Hrekkjavaka

1. nóvember 2006

hrekkjavakahrekkjavaka

 

 

 

 

 

5. bekkur var á amerísku nótunum í gær og hélt upp á Hrekkjavöku á bekkjarkvöldi með Sesselju kennara sínum.

hrekkjavakaÁ Vísindavefnum segir þetta um Hrekkjavöku:

Hrekkjavaka nefnist á enskri tungu Halloween sem er annar ritháttur fyrir Hallowe’en. Hallowe’en er svo stytting á nafninu All Hallows’ Evening eða All Hallows’ Eve sem er kvöldið 31. október, vakan fyrir Allraheilagramessu sem er tileinkuð píslarvottum kirkjunnar. Upphaflega var Allraheilagramessa haldin hátíðleg 1. maí hvers árs, en árið 834 var dagsetning hennar færð yfir á 1. nóvember, fyrst og fremst vegna þess að henni var ætlað að koma í staðinn fyrir ýmsar mikilvægar heiðnar hátíðir sem haldnar voru á sama tíma.
Lesa meira.....

Fullt af skemmtilegum myndum frá bekkjarkvöldinu má skoða á Myndasafninu hér til vinstri.

 

Próf og annað námsmat

1. nóvember 2006

Í þessari viku fer fram námsmat í öllum bekkjum um leið og haustönn lýkur. Flestir kennarar meta vinnu og önnur próf nemenda á önninni til einkunnar og sumir leggja fyrir próf í kennslustundum. Þó eru sérstakir prófdagar sem hér segir og fellur þá kennsla niður að öðru leyti hjá viðkomandi nemendum:

6. bekkur:
Föstudagur 3. nóv.: Náttúrufræði kl. 8.05 og stærðfræði kl. 10.00

7. bekkur:
Fimmtudagur 2. nóv.: Íslenska kl. 8.05 og enska kl. 10.00
Föstudagur 3. nóv.: Stærðfræði kl. 8.05

8. bekkur:
Fimmtudagur 2. nóv.: Íslenska kl. 8.05
Föstudagur 3. nóv.: Stærðfræði kl. 8.05

9. bekkur:
Föstudagur 3. nóv.: Stærðfræði kl. 8.05

10. bekkur:
Fimmtudagur 2. nóv.: Stærðfræði kl. 8.05
Föstudagur 3. nóv.: Íslenska kl. 8.05 og danska kl. 10.00


 

Eldri fréttir:

október 2006
ágúst og september 2006
maí 2006
mars og apríl 2006
febrúar 2006
janúar 2006