Grunnskólinn í Stykkishólmi

 

Fréttir í október 2006

Nýr vefur HSH

26. 10. 2006

hsh logoHéraðssamband Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu, HSH, hefur opnað nýjan vef. Þar eru ýmsar gagnlegar upplýsingar um starfið og þess vegna ætlum við að hafa fastan tengil hér á síðunni. Auðvitað setjum við líka merki Snæfells svo hægt verði að fara stystu leið þangað af heimsíðu skólans.

 

 

Skólabygging

23. október 2006

Næsti fundur starfshópsins sem vinnur að undirbúningi skólabyggingar fyrir grunnskóla og tónlistarskóla verður föstudaginn 27. október.

Fundargerðir fyrstu tveggja fundanna má nálgast hér: Fundur 20. september, fundur 4. október.

Samræmd könnunarpróf

16. október 2006

Þann 19. og 20. október næstkomandi verða samræmd könnunarpróf lögð fyrir í 4. og 7. bekk grunnskóla. Prófað verður í íslensku og stærðfræði.
Markmið með fyrirlögn prófanna eru aðallega tvíþætt. Í fyrsta lagi að gefa upplýsingar um að hvaða marki nemendur hafa náð grundvallarkunnáttu og færni sem frekara nám byggir á. Í öðru lagi að vera foreldrum, kennurum og skólayfirvöldum til leiðbeiningar um námsstöðu nemenda.
Með því að leggja samræmd könnunarpróf fyrir að hausti, gefast tækifæri til að nýta niðurstöður þeirra við skipulag náms og kennslu.
Einhver röskun getur orðið á skólastarfi prófdagana. Forráðamenn barna eru vinsamlega beðnir um að sýna því skilning.

Nánar má fræðast um prófin á vef Námsmatsstofnunar: www.namsmat.is

Myndir úr skólahlaupinu

10. okt. 2006

Það hefur dregist að setja hér inn myndir af skólahlaupinu sem fór fram 29. sept. síðastliðinn. Þá var hlaupið í tveimur flokkum, eldri og yngri og gátu krakkarnir valið stóran eða lítinn hring. Vatnsstöðvar og hvatningar- og aðstoðarmenn voru á völdum stöðum og svo beið krakkanna pylsuveisla og sundferð að loknu hlaupi. Ekki má gleyma viðurkenningunni sem í þetta sinn var forláta fótbolti frá KB banka. Starfsfólk og nemendur færa sundlauginni og KB banka sínar bestu þakkir fyrir þeirra þátt í skemmtilegum vikulokum.

Myndir eru núna komnar inn á myndasafnið.

skólahlaup

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Fyrirhuguð skólabygging

4. október 2006

Fyrsti fundur starfshóps um fyrirhugaða skólabyggingu, sem á að hýsa alla grunnskólabekkina og tónlistarskólann, var haldinn miðvikudaginn 20. september. Vinnunni stýrir Anna Kristín Sigurðardóttir frá Menntasviði Reykjavíkurborgar en hún hefur allmikla reynslu af þeim vinnubrögðum sem verður beitt við undirbúningsvinnuna. Til fróðleiks er fundargerð fyrsta fundar hér í pdf-skjali.

fundur

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Næsti fundur hópsins er svo núna á miðvikudaginn kemur og það verður 6 tíma törn og vonandi fjörugar umræður.

 


 

Eldri fréttir:

ágúst og september 2006
maí 2006
mars og apríl 2006
febrúar 2006
janúar 2006