Grunnskólinn í Stykkishólmi

 

 

Annarlok

29. október 2007

Nú fer að líða að lokum haustannar. Prófum og öðru námsmati á að vera lokið í vikunni 12. - 16. nóvember. Í 5. - 10. bekk verða tveir prófdagar, þ.e. þriðjudagur 13. nóv. og miðvikudagurinn 14. nóv. Starfsdagur verður svo mánudaginn 19. Foreldraviðtöl eru svo áætluð í vikunni 26. - 30. nóvember.

Lúðrasveitarkynning

18. október 2007

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Það er mikið fjör í lúðrasveitinni og nú ber svo við að það eru laus pláss hjá Martin í Tónlistarskólanum þannig að hann ásamt þremur blásurum kom í heimsókn í nokkra bekki. Spiluðu þau fyrir nokkur lög fyrir krakkana og kynntu starfið í lúðrasveitinni.

Á myndinni eru: Hrefna Rós, Elín Sóley, Margrét og Martin.

Fréttir af X-inu

15. október 2007

Nú fer starfsemin í Félagsmiðstöðinni að fara í gang aftur. María Kúld og Mattías Þorgrímsson hafa tekið við umsjón og komu þau í dag í skólann til þess að ræða málin við krakkana. Mikil ánægja er meðal nemenda að loks skuli starfsemin komin á réttan kjöl og hlakka allir til samstarfsins við þau Maríu og Matthías.

Söngsalur

11. október 2007

Í morgun var söngsalur á Borgarbrautinni. Þar var aðallega tekin góð æfing á Nínu - stuðningsmannalagi Snæfells - og var vel tekið undir.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Dans

11. október 2007

Nú er danskennslan komin af stað. Það er Dansskóli Jóns Péturs og Köru sem sér um kennsluna eins og undanfarin ár. Á morgun , föstudaginn 12. okt. verða tímarnir sem hér segir:

Kl: 8:50 5. + 6. bekkir

Kl: 9:40 3. + 4. bekkur

Kl: 10:20 2. bekkur

Kl: 11:00 1. bekkur

Kl: 13:30 7. – 10. bekkir í X-inu. Allir hjartanlega velkomnir í fyrsta tíma.