Grunnskólinn í Stykkishólmi

 

Breytingar í starfsliði

30. okt. 2008

Þær breytingar hafa orðið frá því í haust að tveir kennarar eru nú komnir í fæðingarorlof. Sigurborg Sturludóttir fór í orlof í september og fæddi dreng laugardaginn 25. október og óskum við henni og fjölskyldunni hjartanlega til hamingju. Við starfi hennar sem umsjónarkennari 4. bekkjar tók Sara Sædal Andrésdóttir, kennaranemi, sem hefur starfað hér sem stuðningsfulltrúi. Þá þurfti Alda Leif Jónsdóttir umsjónarkennari 2. bekkjar að hætta að vinna fyrr en áætlað var og Halldóra Birna Jónsdóttir tók við hennar starfi.

Starfsdagur

20. okt. 2008

Minnt er á að næstkomandi föstudag, 24. október, verður frí hjá nemendum vegna "starfsdags kennara". Þennan dag ætlar starfsfólk skólans að fara til Reykjavíkur og á dagskránni er að skoða tvo nýlega skóla fyrir hádegið (Álftanesskóla og Lækjarskóla í Hafnarfirði) og sækja síðan málþing í Kennaraháskólanum eftir hádegi.

 

Sýning hjá 6. bekk

17. okt. 2008

Nemendur 6. bekkjar luku deginum með því að bjóða foreldrum og öðrum nemendum að skoða sýningu á vinnu þeirra með innyfli. Hér eru nokkrar myndir frá sýningunni:

 

Innmatur í rannsókn

17. okt. 2008

 

 

Nú stendur sláturtíðin sem hæst og margir sem gera sér góðan mat úr afurðum sauðkindarinnar. Það er líka kærkomið tækifæri til að skoða og snerta á ýmsu óvenjulegu sem oft er aðeins hægt að skoða í bókum eða á skjá. Krakkarnir í 6. bekk voru í gær að skoða innyfli úr sauðfé undir stjórn búfræðingsins og umsjónarkennara síns Lárusar Hannessonar. Nokkrar myndir eru hér á myndasafninu.

 

Kynningarfundir um nýja menntastefnu

15. okt. 2008

Menntamálaráðuneytið hefur í haust kynnt þær breytingar sem hafa verið gerðar á lögum um leik-, grunn- og framhaldsskóla undir heitinu Ný menntastefna. Góðar upplýsingar um hvað felst í stefnunni er að finna á vef ráðuneytisins sem ber sama nafn, Ný menntastefna. Allir áhugasamir eru hvattir til að kynna sér þennan vef.

Kynningarfundir fyrir Vesturland á menntastefnunni verða haldnir í Borgarnesi á morgun, 16. október, annars vegar kl. 13.00, og er sá fundur hugsaður fyrir sveitarstjórnarmenn og stjórnendur skóla- og fræðslumála, og svo hins vegar opinn borgarafundur kl. 20.00.

Fundirnir eru haldnir í hinum nýja Menntaskóla Borgarfjarðar og borgarafundurinn kl. 20 er líka sendur út um fjarfundabúnað í Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði.

Hér að neðan er birtur kafli úr kynningarbréfi vegna fundanna:

Á fyrri fundinum verður megináherslan lögð á að fjalla um þær breytingar og nýjungar sem lögin boða og hafa munu sérstök áhrif á starfshætti sveitarfélaga og starfsmanna þeirra er sinna málefnum leik- og grunnskóla fyrst og fremst. Fjallað verður um ýmsar spurningar sem vaknað hafa í upphafi skólaársins, þ.á.m. gjaldtöku vegna skólamáltíða og ferðalaga nemenda, kostnað vegna náms grunnskólanemenda í framhaldsskólum, skipan skólaráða, samrekstrarmöguleika o.fl.  Þá verður vikið að breytingum á hlutverki og skyldum skólastjórnenda og nýjum skyldum sveitarfélaga við eftirlit og mat á gæðum skólastarfs, vegna sérfræðiþjónustu o.fl . Spurt verður hvort skynsamlegt sé að setja á fót millikærustig innan sveitarfélags í ljósi kæruheimilda er tengjast ýmsum ákvæðum nýrra laga. Farið verður yfir stöðu reglugerðar- og námskrárvinnu í tengslum við lögin o.fl. Þessi álita- og umræðuefni auk þeirra annarra sem fundarmenn hafa áhuga á að bera upp verða í brennidepli á þessum fundum og gefinn verður góður tími til umræðna að loknum framsögum fulltrúa menntamálaráðuneytis og sambandsins.

Við hvetjum ykkur til þess að nýta þetta tækifæri vel til þess taka virkan þátt í fundinum og koma ykkar skoðunum á framfæri. Álit ykkar sveitarstjórnarmanna og starfsmanna og stjórnenda skóla- og fræðslumála á nýjum lögum og þeim áhrifum sem þau munu hafa á skólahaldsveitarfélaga til framtíðar er afar þýðingarmikið innlegg í áframhaldandi starf og framþróun á grundvelli laganna,  þ.á.m. í tengslum við þá reglugerðarvinnu sem nú er hafin.    

Seinni fundurinn verður opinn borgarafundur á vegum menntamálaráðuneytisins til kynningar á nýrri menntalöggjöf fyrir skólafólk, foreldra, nemendur og annað áhugafólk um skólamál. Það er von okkar að þið hvetjið til góðrar mætingar einnig á þá fundi og sveitarstjórnarfólk fjölmenni jafnframt til umræðna og fyrirspurna til menntamálaráðherra . Fundirnir verða haldnir milli kl 20 og 22 á hverjum stað og ný menntalöggjöf kynnt af ráðherra (eftir því sem tök eru á) og sérfræðingum menntamálaráðuneytis. Opið verður fyrir umræður að erindum loknum.

 

Ferðalangar komnir heim

13. okt. 2008

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Í síðustu viku fóru fjórir kennarar til Spánar vegna Comeniusar-verkefnis sem skólinn hefur verið þátttakandi í undanfarin ár. Verkefnið er unnið í samstarfi við skóla frá Finnlandi, Póllandi, Ítalíu og Spáni og kallast Compass To Cultures. Ferðin tókst vel og var unnið við að skipuleggja starfið í vetur en það fjallar um tómstundir barna. Skólinn í Villanueva de la Reina var vinnustaðurinn þessa daga og einnig var farið í skoðunarferðir um nágrennið.

Hér vinstra megin á síðunni er tengill á vef verkefnisins sem gefur einhverja hugmynd um hvaða verkefnum hefur verið unnið að. Aðalafraksturinn er þó í vinnu nemendanna í hverjum skóla (1.-4. bekk hjá okkur) og hefur m.a. verið sýnilegur að hluta á veggjum skólanna.