Fréttir í ágúst og september 2006
Pósturinn
28. september 2006
Ekki er enn búið að lagfæra póstþjóninn hér í skólanum sem hefur verið meira og minna óvirkur síðustu tvær vikurnar. Þess vegna hefur tölvupóstur, sem sendur er á netföng sem enda á stykk.is, ekki komist til skila.
Við erum vongóð um að það styttist í að þetta verði lagað og biðjum þá sem þurfa að hafa samband við starfsfólk skólans að nota símann (433 8177)
Forvarnardagurinn 28. september
28. september 2006
Í dag er Forvarnadagurinn haldinn um allt land. Í skólum er dagskráin fyrst og fremst miðuð við 9. bekk og eru áhersluatriðin þrjú: "Hvert ár skiptir máli", "Íþrótta- og æskulýðsstarf" og "Samvera".
Auk umræðna í 9. bekk verður Skólahlaupið hluti af dagskrá forvarnadagsins. Hlaupið verður á morgun, föstudag, og verða síðustu kennslustundirnar fyrir hádegi notaðar í það. Að loknu hlaupinu verður pylsuveisla eins og venjulega.
Danskennsla
28. september 2006
Eins og fram hefur komið á foreldrafundum í haust verður danskennsla fyrir nemendur 1. - 6. bekkjar með sama sniði og í fyrra. Dansinn verður á skólatíma á fimmtudögum í sal tónlistarskólans.
Nemendum í 7. - 10. bekk býðst 8 tíma námskeið sem kostar 5700,- krónur. Fyrsti tíminn er í dag kl. tvö hjá 7. bekk og kl. þrjú hjá eldri nemendum. Þessir tímar verða í sal tónlistarskólans en framvegis verða tímarnir á miðvikudagskvöldum í X-inu. Tímasetningar auglýstar nánar í næstu viku.
Kveðjustund
21. september 2006

Í dag halda nemendur og kennarar frá Kolding heim á leið eftir ánægjulega heimsókn hjá 10. bekkingum.
Krakkarnir hafa frá því á þriðjudag unnið ýmis verkefni saman í skólanum og í íþróttahúsinu auk þess að vera saman öllum stundum og rifja upp kynnin frá því í vor. Í gærkvöldi var hátíðarkvöldverður með þátttöku foreldra og fyrr um daginn var landsleikur í alls konar greinum í íþróttahúsinu.
Nokkrar myndir eru í myndasafninu.
Erlent samstarf
18. september 2006
Nemendur og kennarar eiga í margvíslegu erlendu samstarfi. Löng hefð er komin á samskipti elstu nemendanna við jafnaldra sína í Kolding í Danmörku. Oftast hefur samstarfið verið við Lyshöjskolen og hafa góð kynni tekist með starfsfólki skólanna og auðvitað nemendanna líka.
Síðasta vor fóru þáverandi 9. bekkingar í heimsókn til Kolding og áttu þar góða daga og nú um helgina komu Danirnir til okkar. Hópurinn er væntanlegur í Hólminn seinnipartinn í dag en er núna á ferð um "Gullna hringinn" í fylgd Gunnars skólastjóra. Næstu daga vinna danskir og íslenskir krakkar saman að ýmsum verkefnum í skólanum og Danirnir halda heimleiðis á fimmtudagskvöld.
Annað samstarfsverkefni byrjaði í fyrra þegar kennarar 1. - 4. bekkjar hófu samstarf við nokkra skóla í Evrópu með styrk frá Comeniusar sjóðnum. Þessa vikuna verða Sigurborg, Helga og Sesselja í Finnlandi vegna þessa verkefnis og það eru Steinunn, Guðrún Erna og Guðrún Hauksdóttir sem leysa þær stöllur af.
Kosningar
12. september 2006
Í morgun voru kosnir formenn nemendaráðs og íþróttaráðs. Í hvort embætti buðu sig fram þrír nemendur úr 10. bekk.

Bergdís Eyland, Kristján Pétur og Ólöf Birna buðu sig fram sem formenn iþróttaráðs. Flest atkvæði hlaut Kristján Pétur Andrésson.
Fanney, Helga Hjördís og Sigurvin voru í framboði sem formenn nemendaráðs og flest atkvæði fékk Sigurvin.
Krakkarnir fluttu allir framboðsræður sem þeir höfðu æft og undirbúið vel og ýmis kosningaloforð voru gefin. Þeirra bíður svo það mikla verkefni að halda uppi öflugu félags- og íþróttastarfi í samvinnu við aðra fulltrúa úr bekkjunum.
Öllum frambjóðendunum óskum við til hamingju og minnum á að í myndasafninu eru nokkrar ljósmyndir frá kosningunum.
Leikhús í morgunsárið
7. september 2006
Nemendur 7. - 10. bekkjar hófu daginn með því að fara í leikhús.
Kl. 8.05 sýndi Stoppleikhópurinn okkur enn á ný hvað hægt er að gera skemmtilega sýningu úr efni sem við fyrstu sýn höfðar kannski ekki til unglinga. Síðast var það Hrafnkels saga sem leikhópurinn lífgaði svo skemmtilega við og sýndi í bíóinu en nú var komið að sjálfum Hamlet.
Í kynningu með sýningunni segir:
Leikritið Emma og Ófeigur er lauslega byggt á sögunni um Hamlet eftir William Shakespeare. Verkið er samspil ýmissa stíla og leikur að orðum. Þar er vísað beint og óbeint í ýmis bókmenntaverk, ekki aðeins eftir Shakespeare heldur einnig önnur klassísk verk, ævintýri og bíómyndir.
Höfundur er Árni Ibsen í samstarfi við Völu Þórsdóttur og leikhópinn.
Við þökkum Eggerti Kaaber og félögum í Stoppleikhópnum kærlega fyrir skemmtilega morgunstund.
Nýtt skólaár
21. ágúst 2006
Nú er hafið nýtt skólaár og mætti starfsfólk skólans til starfa í síðustu viku að gera allt klárt fyrir að taka á móti nemendum.
Fyrsti skóladagur nemenda verður miðvikudagurinn 23. ágúst og þá hitta bekkirnir umsjónarkennara og eiga saman stutta stund í sinni stofu.
Tímasetningar þennan dag eru þannig að 1. - 5. bekkur eiga að mæta í barnaskólann við Skólasstíg kl. 11 en eldri nemendur, 6. - 10. bekkur mæta við Borgarbrautina kl. 10.
Fimmtudaginn 24. ágúst hefst svo kennsla samkvæmt stundaskrá.
Til vinstri hér á þessari síðu er tengill í síðu með innkaupalistum. Þetta er einungis hugsað til leiðbeiningar og minnis og má vera að sumir kennarar leggi fram ítarlegri lista þegar þeir hitta nemendur á miðvikudaginn kemur.
Skóladagatal
13. júní 2006
Þegar smellt er á tengilinn hér að ofan (DAGATAL) er hægt að skoða skóladagatal næsta vetrar. Þar er búið að færa inn helstu atriði, s.s. skólabyrjun, starfsdaga vetrarins og vetrarfrí sem verður heil vika í nóvember (13. - 17. nóv.)
Eldri fréttir:
maí 2006
mars og apríl 2006
febrúar 2006
janúar 2006