Dagur íslenskrar tungu - Skáld í skólum
13. nember 2009
16. nóvember er fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar og dagur íslenskrar tungu . Þann dag hefst formlega Stóra upplestrarkeppnin í 7. bekk sem lýkur svo í mars.
Í tilefni dagsins ætla skólarnir á Snæfellsnesi að taka á móti tveimur rithöfundum þriðjudaginn 17. nóvember. Þetta eru þær Kristín Steinsdóttir og Sigrún Eldjárn og koma þær til okkar eftir hádegið og verða með dagskrá sem heitir Hetjur og söguhetjur.
Dagskráin er aðallega miðuð við 5. - 7. bekk en aðrir nemendur eru að sjálfsögðu velkomnir líka.
Í texta með kynningu á dagskránni á vef Rithöfundasambandsins segir a þær séu "...báðar þaulreyndar í skáldsagnaskrifum fyrir ýmsa aldurshópa. Sögupersónur þeirra eru mismiklar hetjur, en allar eiga þær það sammerkt að vera söguhetjur. Kristín mætir með splunkunýja bók sem heitir einfaldlega Hetjur og í henni er farið um víðan völl en einnig horft til fortíðar. Í Eyjabókum Sigrúnar, Eyjum Gullormsins, Glerfisksins og Sólfuglsins, fara söguhetjurnar á furðulegar slóðir sem eru ekki endilega til í raunveruleikanum.
Viðbragðsáætlun
1. nóvember 2009
Í byrjun skólaársins barst erindi í alla skóla landsins um að gerð yrði viðbragðsáætlun vegna inflúensufaraldurs. Gerð var áætlun fyrir Grunnskólann en það hefur farist fyrir að setja hana fram hér á vefnum. Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér hana geta smellt á tengilinn hér til hægri.
Sem betur fer hefur flensan ekki herjað á okkur af verulegum þunga en nokkrir hafa þó lagst, bæði nemendur og starfsfólk. Vonanadi fer þó senn að draga úr þessum ófögnuði.
Kurteisi
30. október 2009
Næsta vika verður helguð kurteisi í skólanum. Nemendur og starfsfólk ætla að vinna á ýmsan hátt með þetta hugtak og verður það kynnt nánar hér á vefnum í næstu viku.
Haustannarpróf
30. október 2009
Lok haustannar eru föstudaginn 13. nóvember og í vikunni á eftir ganga kennarar frá námsmati. Í elstu bekkjunum verða haldin próf í sumum námsgreinum og verða prófdagar bekkjanna sem hér segir:
5. og 6. bekkur: fimmtudagurinn 12. nóv.
7. bekkur: miðvikudagur 11. og fimmtudagur 12. nóv.
8. - 10. bekkur: þriðjudagur 10. til fimmtudagur 12. nóvember
Föstudaginn 13. nóvember verður kennsla samkvæmt stundaskrá.
Foreldrafundur
23. október 2009
Opinn foreldrafundur verður þriðjudaginn 27. október í grunnskólanum og hefst hann klukkan 18:15.
Á foreldrafundum Maríta er leitast við að hvetja foreldra til ábyrgðar á börnum sínum og standa saman. "Menning" unglinga er kynnt fyrir foreldrum svo þeir séu sem best undir það búnir að takast á við unglingsár barnsins.
Reiðhjól í skammdeginu
22. október 2009
Nú í skammdeginu vill skólinn mælast til þess að yngstu nemendurnir skilji reiðhjólin eftir heima. Það eru ekki öll hjól þannig útbúin að þau séu lögleg eða tilbúin fyrir vetrarnotkun. Það eru yngstu nemendurnir ekki heldur og þess vegna viljum við beina því til foreldra að þeir sjái til þess að nemendur komi ekki á reiðhjólum í skólann.
Líffæri í sláturtíðinni
20. október 2009
5. og 6. bekkur hafa verið að vinna verkefni um líffærin og þess vegna þótti kennurunum Lárusi og Sigurborgu upplagt að fá efnivið úr sláturhúsi til þess að leyfa nemendunum að "meðhöndla".
Fleiri myndir eru á myndasafninu.

Fundargerð umhverfisnefndar
6. október 2009
Vinna við Grænfánann er hafin að nýju og var fyrsti fundur Umhverfisnefndar skólans nú í morgun. Fundargerðina má lesa með því að smella hér (Word skjal) eða hér (html)
Myndir frá skólahlaupinu
6. október 2009

Skólahlaupið árlega fór fram síðastliðinn föstudag og lauk með pylsuveislu eins og venjan er. Veðrið lék ekki við okkur fremur en í fyrra svo hlaupið var styttra en til stóð upphaflega.
Beta var með myndavélina á lofti og á Myndasafninu má sjá albúm með svipmyndum frá hlaupinu.
Netheilræðin 10
1. október 2009

SAFT verkefnið og Heimili og skóli – landssamtök foreldra hafa nú útbúið nýjan bækling með tíu netheilræðum sem dreift verður til barna í 1.- 4. bekk grunnskóla. Því má búast við að bæklingurinn leynist í skólatöskum barna ykkar á næstu dögum en þar er að finna góð ráð fyrir foreldra til að aðstoða börn og unglinga við örugga tölvu- og netnotkun.
SAFT - Samfélag, fjölskylda og tækni er vakningarátak um örugga tækninotkun barna og unglinga á Íslandi. Verkefnið er hluti af Safer Internet Action Plan, aðgerðaáætlun Evrópusambandsins um örugga netnotkun, og er styrkt af ESB. Samningsaðili við ESB er Heimili og skóli – landssamtök foreldra, sem sjá um að annast útfærslu og framkvæmd verkefnisins að öllu leyti fyrir Íslands hönd.
Við hvetjum alla foreldra og forráðamenn til að gefa sér góðan tíma til að ræða netheilræðin við börnin og hjálpa þeim með því móti að nýta sér jákvæðar hliðar netheima og hamla gegn neikvæðum hliðum upplýsingatækninnar.
"Opinn skóli"
26.september 2009
Mánudaginn 28. september verður "opinn skóli" í Grunnskólanum. Þá er foreldrum boðið sérstaklega að koma og kynna sér starfsemi skólans. Allar kennslustofur verða opnar þann daginn og aðstandendum grunnskólabarna velkomið að kíkja á vinnustað barnanna og fá að vera þátttakendur með þeim í daglegu skólastarfi.
Líf og fjör hjá leiklistarvalinu
25. september 2009
Krakkarnir í leiklistarvalinu sáu um hreyfingu í löngu frímínútunum í morgun:



Talmeinafræðingur
11. september 2009
Ásta talmeinafræðingur kemur til okkar 17. september. Hún hittir börn vegna framburðarerfiðleika og metur málþroska þeirra. Vinsamlegast hafið samband við Elínu til að panta tíma ( elin@stykk.is eða 433 8187).
Sálfræðiþjónusta
10. september 2009
Inga Stefánsdóttir er nýráðinn sálfræðingur grunnskólans og mun hún hafa viðveru hjá okkur hálfsmánaðarlega. Hún býður upp á bein viðtöl við börn og unglinga og einnig veitir hún foreldrum ráðgjöf og stuðning. Þegar við á eru kennarar barnanna fengnir til samvinnu og fá þá einnig ráðgjöf. Öll mál eru að sjálfsögðu trúnaðarmál og verður beiðni/samþykki foreldra eða forráðamanna barnanna að liggja fyrir áður en sálfræðingur kemur að málum.
Fyrsta heimsókn Ingu verður mánudaginn 21. september. Vinsamlegast hafið samband við Elínu til að panta tíma ( elin@stykk.is eða 433 8187).
Foreldrar athugið
7. september 2009
Skólinn hefur verið beðinn um að koma eftirfarandi auglýsingu á framfæri við foreldra:
Í undirbúningi er að stofna félag sem berst fyrir hagsmunum barna með tal- og málþroskafrávik.
Stofnfundur verður 16.9.2009, kl. 20 í Skriðu húsnæði Menntavísindasviðs Háskóla Íslands við Stakkahlíð.
Markmið félagsins verður m.a. að :
- að vekja athygli á nauðsynlegri þjónustu við börn með tal- og málhömlun,
- að fræða aðstandendur um tal- og málhömlun,
- að vinna að auknum “réttindum” barna með tal- og málhömlun,
- að hvetja til rannsókna á tal- og málhömlunum.
Þú ert hjartanlega velkominn á fundinn.
Undirbúningsnefndin
Fyrsti skóladagur
24. ágúst 2009

Fyrsti skóladagur nemenda er á morgun, þriðjudaginn 25. ágúst og eiga nemendur 6. - 10. bekkjar að mæta kl. 10 og nemendur 1. - 5. bekkjar kl. 11. Skólastjóri tekur á móti nemendum sem síðan fara með umsjónarkennurm í sínar stofur. Miðvikudaginn 26. ágúst hefst kennsla samkvæmt stundaskrá.
Minnt er á að umsóknir vegna mötuneytis og lengdrar viðveru (heilsdagsskóla) þurfa að berast á skrifstofu skólans. Umsóknareyðublöð er hægt að prenta út hér á síðunni eða nálgast á bæjarskrifstofu og skrifstofu skólans.
Eyðublöð og fleira
18. ágúst 2009
Starfsfólk skólans kom til vinnu í gær. Mikil vinna er við að undirbúa skólastarfið, ekki síst við að koma fyrir í skólahúsinu við Borgarbraut öllum húsgögnum og öðru dóti sem áður var á Skóalstígnum.
Innkaupalistar eru að tínast inn og eru komnir nýir listar fyrir 1. - 6. bekk. Nýjar útgáfur af hinum listunum koma næstu daga en hægt er að skoða listana á tenglinum skóladót hér til hliðar.
Þá er kominn tengill þar fyrir neðan sem heitir eyðublöð og þar geta foreldrar prentað út umsóknir fyri mötuneyti og lengda viðveru. Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu skólans.
Dagatal
11. ágúst 2009
Skóladagatalið er hægt að nálgast með því að smella á hnappinn DAGATAL hér að ofan.
Innkaupalistar fyrir nemendur og foreldra hafa ekki verið uppfærðir frá því á fyrra ári en verða það þegar kennarar hafa komið til starfa eftir næstu helgi. Gömlu listarnir eru aðgengilegir undir tenglinum SKÓLADÓT hér hægra megin á síðunni.
Nýtt skólaár
6. ágúst 2009

Þriðjudagurinn 25. ágúst verður fyrsti skóladagur nemenda á þessu skólaári.
Nú verða allir bekkir í skólanum við Borgarbraut og eiga nemendur 6. - 10. bekkjar að mæta kl. 10 og hitta umsjónarkennara sína. Nemendur í 1. - 5. bekk koma svo kl. 11 sama dag.
Kennsla hefst svo samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 26. ágúst.
Skóladagatal næsta skólaárs verður sett hér inn á síðuna fyrir miðjan mánuðinn.
Eldri fréttir:
maí 2009
apríl 2009
mars 2009
febrúar 2009
janúar 2009
desember 2008
nóvember 2008
október 2008
júní til september 2008
maí 2008
apríl 2008
mars 2008
febrúar 2008
janúar 2008
desember 2007
nóvember 2007
október 2007
júní til september 2007
apríl og maí 2007
mars 2007
febrúar 2007
janúar 2007
nóvember og desember 2006
október 2006
ágúst og september 2006
maí 2006
mars og apríl 2006
febrúar 2006
janúar 2006



