Ágæta samstarfsfólk.

Hér getur að líta niðurstöður úr könnun, sem undirritaður lagði fyrir nemendur, foreldra og kennara Grunnskólans í Stykkishólmi að áliðnum marsmánuði 2005.

Var þetta samstarfsverkefni undirritaðs og Guðnýjar Bjargar Karlsdóttur, kennara í Njarðvíkurskóla.

Niðurstöður fyrir Stykkishólmshlið verkefnisins eru hér settar fram í glærusýningum, en lokaverkefnið sem við Guðný unnum er hér einnig til skoðunar í pdf-skjali. Þar eru valdar spurningar, sem tengjast rannsóknarspurningum okkar, teknar og svörin borin saman milli skólanna.

Allar niðurstöður eru magnniðurstöður, ef svo má segja. Ekki er greint nánar en eftir stöðu viðkomandi (nem., for., kenn.) en þó líka aldursstigum nemenda.

Bestu þakkir enn og aftur fyrir góð skil,

Hreinn Þorkelsson.

Helstu niðurstöður

2. - 3. bekkur

4. - 7. bekkur

8. - 10. bekkur

Kennarar

Foreldrar

Lokaverkefni HÞ og GBK