Listasöguágrip
Eins
og kunnugt er tók daglegt líf fólks engum stórvægilegum breytingum í gegnum aldirnar fyrr en iðnbyltingin hófst
á vesturlöndum um miðja
síðustu öldina. Það sama átti að sjálfsögðu við um listina því hún er alltaf ákveðin endurspeglun síns samtíma.
Þegar
mikil ólga er í einhverju þjóðfélagi ólgar listin, þegar þjóð er haldið í helfjötrum þá múlbindast þeir listamenn sem
ekki ná að flýja og myndlistin
staðnar. Því var það að mikil breyting og gerjun átti sér stað með tilkomu iðnbyltingarinnar.
Einnig
markaði uppfinning L. J. M. Daguerre árið 1839, ljósmyndavélin, sterk spor í listasöguna (1).