Umhverfisnefnd 1. fundur
Fundur í umhverfisnefnd GSS 6. Okt 2009 kl. 9:50
Mættir: Sigurborg, Guðmunda, Elín, Trausti, Helga, Beta, Steinunn, Unnur og fulltrúar nemenda, Finnbogi 6.b, Ágúst 5.b, Aron 9.b, Einar 9.b, Sigurður 3.b, Theodóra 3.b, Hrafnhildur 4.b, Hraundís 4.b, Sigrún 10.b, Halldóra 7.b, Bryndís 8.b
Formaður bauð fundarmenn velkomna. Farið verður í stuttu máli, hvað umhverfisnefnd þarf að gera í vetur.
Í umhverfisnefnd eru : Sigurborg formaður, Unnur María ritari, Guðmunda f.h. starfsmanna, Elín f.h. stjórnenda, Trausti og Steinunn fulltrúar kennara, Helga og Beta árgangastjórar, Sigurður og Theodóra f. 3 bekk, Hrafnhildur og Hraundís f. 4. bekk, Ágúst f. 5. bekk, Finnbogi f. 6. bekk, Halldóra f. 7. bekk, Bryndís Inga f. 8. bekk, Aron og Einar f. 9. bekk og Sigrún f. 10. bekk.
Meta stöðu umhverfismála í skólanum :
Fara yfir gátlista
Gera áætlun um aðgerðir og markmið til umhverfisbóta :
Útikennsla- Sorp, endurvinnsla.
Sinna stöðugu eftirliti og endurmati í umhverfismálum í skólanum :
Eftirlit/endurmat - umhverfislöggur
Nemendur fræddir um umhverfismál:
Fræðsla kynning í bekkjum, merkingar/plaköt
Skólinn kynnir stefnu sína út á við og fær aðra með :
Sett á heimasíðu skólans- kynning í Stykkishólmspósti
Skólinn setur sér formlega umhverfisstefnu :
Umhverfissáttmáli
Næsti fundur verður miðvikudaginn 14. október kl. 14:00, sem verður notaður í meiri vinnu.
Fundi slitið 10:10 UMR