Lionsklúbbur Stykkishólms var stofnaður 26. febrúar 1967
og nú eru í honum 28 félagar, þar af einn ævifélagi:
Árni Helgason. Þrír félagar klúbbsins hafa verið
tilnefndir Melvin
Jones félagar: Stofnfélagarnir
Árni Helgason,
Ingvar Ragnarsson
(látinn) og Hallfreður
Lárusson.
Móðurklúbbur Lkl. Stykkishólms er
Lkl. Búðardals
en Lkl. Stykkishólms er móðurklúbbur eftirfarandi
klúbba:
Lkl. Grundarfjarðar,
Lkl. Nesþinga,
Lkl. Hnappdæla
(hættur) og
Lkl. Hörpu.
Starf klúbbsins hefur alla tíð verið öflugt og hann
áberandi í menningarlífi Hólmara. Á fyrstu starfsárunum
eignaðist klúbburinn eigið húsnæði sem félagarnir fluttu
á nýjan grunn, stækkuðu og innréttuðu sem félagsheimili.
Lionshúsið var í nokkur ár eini samkomustaðurinn í
Stykkishólmi og hefur alla tíð verið notað mikið af
öðrum auk þess að vera félagsheimili Lionsmanna.
Verkefni klúbbsins hafa einkum beinst að stuðningi við
stofnanir, einstaklinga og félög í Stykkishólmi og
nágrenni. Má þar nefna tækjakaup og ýmsar gjafir til St.
Fransiscusspítalans, heilsugæslustöðvar, Dvalarheimilis
aldraðra og skólanna í Stykkishólmi. Vímuvarnir og
stuðningur við unglingastarf hefur verið á dagskránni í
tengslum við Félagsmiðstöðina X-ið og grunnskólann.
Í
nokkur ár sáu Lionsfélagar um að jólapósturinn kæmist
til skila. Klæddir í jólasveinabúninga fóru þeir hús úr
húsi og skemmtu með söng og glensi í verslunum á
Þorláksmessu. Enn fara jólasveinar Lions í heimsóknir á
Dvalarheimilið og sjúkrahúsið og færa gjafir.
Fjáraflanir klúbbsins hafa verið fjölbreyttar.
Blómasala þrisvar á ári og sala heilla- og
fermingarskeyta vega þar þyngst. Hér áður fyrr var farið
í skelróðra nokkrum sinnum á ári og gaf það góðar tekjur
og þótti skemmtileg tilbreyting. Útgerðarmenn lögðu til
báta og skipstjórnarmenn en Lionsmenn mönnuðu
hásetaplássin.
Fjölmargar aðrar fjáröflunarleiðir hafa verið reyndar í
lengri eða skemmri tíma og má t.d. nefna að á "Dönskum
dögum", síðsumarhátíð Hólmara, hafa Lionsmenn staðið
fyrir feykivinsælu uppboði á notuðum munum sem þeir hafa
fengið frá fólki í bænum.
Umsjón með verkefnum klúbbsins hafa stjórn og Verkefna-
og fjáröflunarnefnd.
|